Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/33690
Í Vanitas er hugmyndin um hégóma skoðuð og hvernig hún hefur þróast í gegnum tíðina og birtist okkur í dag. Er hégómi löstur? Hvers vegna? Hver ákveður það? Horft er meðal annars til biblískra hugmynda um hégóma og birtingarmyndir hégóma í listasögunni skoðaðar. Er hégómlegt að horfa í spegil eða miðla sjálfsmynd sinni á netinu? Að eltast við og forðast hégóma sinn getur skapað merkilegan vítahring. Letrið Vanitas Display dregur innblástur frá táknfræði hégómans; hrörnun, líðandi reykur á nýslökktu kerti, skreyti og flúr. Læsileiki þess er ekki í forgangi, hégóminn birtist í að láta form þess og fagurfræði ráða för.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
honnunargreining_margret_3.pdf | 7.5 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |