Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3382
Í ritgerð þessari er rannsökuð saga systkinanna og fjölskyldu frá Sléttu í Jökulfjörðunum frá aldamótunum 1900 og til 1950, er þau búa á Ísafirði. Þau ásamt öðrum sem bjuggu á þessum slóðum upplifa það að byggðin fer í eyði og þau flytja á Ísafjörð. Mikil breyting verður á lífinu á Sléttu frá því að afi þeirra og amma hefja þar búskap og þar til þau systkinin eru flutt á Ísafjörð. Systkinin áttu föt til að skýla sér og skipta, einnig spariföt, ekki nýjustu tísku en hlý og góð föt. Þau fóru í skóla en það var farskóli sem var í Aðalvík og Hesteyri. Systkinin höfðu vinnuskyldu og reyttu kartöflu- og kálgarðinn, sátu yfir ásamt því að sendast og smala. Vinnuálagið var meira en í dag en þau segjast sátt og þeim hafi verið kennt að vinna í gegnum leik. Mesta breytingin varð er fjölskyldan flutti á Ísafjörð. Þá fara þau úr góðu lífi á Sléttu þar sem var nógur matur í það að þau voru heppin að þau voru með búfé og fengu kjöt og mjólk. Húsið á Ísafirði var minna en það á Sléttu. Fyrirvinnur heimilisins verða atvinnulausar, enga atvinnu að fá, báturinn seldur og lítið um að vera. Þetta eru miklar breytingar á stuttum tíma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Selma_Gudnadottir_fixed.pdf | 1.61 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |