Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33902
Öll börn eiga rétt á því að láta í ljós skoðanir sínar í málum er þau varða. Þessi réttindi barna eru m.a. tryggð í barnalögum nr. 76/2003, barnaverndarlögum nr. 80/2002 og lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 19/2013.
Á hverjum degi eru réttindi barna brotin. Börnum skortir þekkingu á réttindum sínum og þau fá ekki alltaf tækifæri til að tjá skoðanir sínar áður en teknar eru mikilvægar ákvarðanir sem þau varða. Sem betur fer hefur verið hröð framþróun hérlendis með tilurð barnasáttmálans og réttur barna meðal annars til að taka ákvarðanir, tjá skoðanir sínar í málum er þau varða og vera virkari þátttakendur í íslensku samfélagi fer stigvaxandi.
Nú þegar eru í gangi tvö verkefni sem eiga að styrkja réttindi barna og eru þessi verkefni á vegum hins opinbera annars vegar og UNICEF hinsvegar. Verkefni UNICEF snýst um það að innleiða barnasáttmálann í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga og þýðir það að sveitarfélag samþykkir að nota barnasáttmálann sem viðmið í störfum sínum. Verkefni hins opinbera stefnir að því að auka þátttöku barna og ungmenna í stefnumótun stjórnvalda og einnig að því að allar stærri ákvarðanatökur og lagafrumvörp skuli skoðuð út frá áhrifum þeirra á stöðu og réttindi barna.
All children have the right to express their opinion in matters concerning themselves. These rights are for example ensured in the Children´s Act no. 76/2003, the Child Protection Act no. 80/2002 and in the law on the United Nations Convention on the Rights of the Child no. 19/2013.
Every day children’s rights are violated. Children lack the knowledge about their rights and they don’t always have the opportunity to express their opinion before important decisions concerning them are made.
Fortunately, there has been quick progress in Iceland with the establishment of the United Nations Convention on the Rights of the Child, so for example the children´s right for decision making and expressing their opinion is gradually going upwards, as is their active participation in society.
Two projects are already running with the aim to strengthen children´s rights, one under the aegis of the government and the other under the aegis of UNICEF.
UNICEF´s project involves to adopt the United Nations Convention on the Rights of the Child into the administration and operations of communities which means that communities agree to use the convention as a frame of reference in their work.
The government’s project aims to increase children’s and youth’s participation in the policy formulation of the government and to insure that all important decision-making and law proposals will be examined with the influences they have on children´s rights and their situation in mind.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
RaddirBarna.pdf | 324,6 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |