is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Sviðslistadeild / Department of Performing Arts > Lokaverkefni / Final projects (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33985

Titill: 
  • Leitin að Fríðu Hugljúfu : söngleikurinn Matthildur í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rakel Björk Björnsdóttir stendur á krossgötum en ritgerð þessi markar viss tímamót í lífi höfundar sem útskrifast með B.A. gráðu af leikarabraut við Listaháskóla Íslands 15. júní, 2019. Ritgerðin er nákvæm yfirferð á ferðalagi Rakelar í söngleiknum Matthildi í Borgarleikhúsinu sem er jafnframt útskriftarverkefni hennar við Listaháskólann í samstarfi við Borgarleikhúsið. Fjallað er um hvaða aðferðir og leiðir höfundur notaði til að skapa og túlka persónu Fríðu Hugljúfu, kennara Matthildar í verkinu, á trúverðugan hátt. Auk þess gerir Rakel grein fyrir uppgötvunum, áskorunum og lærdómi ferlisins. Hafsjó af þekkingu og verkfærum er hægt að tileinka sér í skapandi verkefnum en aðferðirnar sem stuðst var við, voru að stórum hluta úr smiðju leikhúsfrömuðanna Konstantin Stanislavski og Michael Chekhov.
    Skiptist ritgerðin upp í fjóra meginkafla og í hverjum kafla er fjallað ýtarlega um aðferðir, nálgun, reynslu og lærdóm höfundar. Fyrst er sagt frá verkinu Matthildi. Þá tekur við kafli um rannsóknarferlið, greiningu í anda Stanislavski, baksögu Fríðu Hugljúfu og hvernig höfundur nýtir aðferðafræði Chekhov til að virkja líkamann enn frekar við persónusköpunina. Í þriðja kafla fjallar höfundur um sýningartímabilið, mikilvægi þess að varðveita orku og greinir frá aðferðum sínum til að styðja við lífræna sviðstilveru. Að lokum dregur höfundur saman lærdóm og gjafir ferlisins. Rakel heldur full tilhlökkunar af stað út í óvissu framtíðarinnar með ríkulegt veganesti úr námi sínu við Listaháskóla Íslands.
    Er ég verð stór,
    þá verð ég kaldur karl með sann og kýli
    niður drauginn þann er hvíldi undir rúmi,
    en þá verð ég stór.

  • Útdráttur er á ensku

    Rakel Björk Björnsdóttir is at a crossroads, but this thesis marks a certain turning point in the life of the author who graduates with a BA degree in Acting from The Iceland University of the Arts in June, 2019. The essay is a detailed review of Rakel's journey in The Musical Matthildur in The Reykjavík City Theatre. The performance is Rakel’s graduation project from The Iceland University of the Arts in collaboration with The Reykjavík City Theatre. The methods and ways in which the author used to create and interpret in a credible way the character of Fríða Hugljúfa, Matthildur's teacher in the play, are discussed thoroughly. In addition, Rakel explicates her discoveries in the process, the challenges she faced and the lessons learned. A repository of information, knowledge and tools can be embraced in creative projects. The author’s methods used in creating the character of Fríða Hugljúfa were largely taken from the System of Stanislavski and Michael Chekhov’s Technique.
    The thesis is divided into four main chapters, and each chapter discusses in detail the author’s methods, approach and experience in the learning process. Rakel begins with an introduction of The Musical Matthildur. Following is a section that covers the research process, which includes an analysis in the spirit of Stanislavski, introduction to Fríða’s background history and the author’s utilization of Chekhov's methodology to further enhance the characterization. In the third chapter, the author discusses the importance of preserving energy in creative work and revises the methods used to support an organic stage presence during the exhibition season. Finally, Rakel summarizes the lessons learned and the valuable gifts of the journey. She cannot wait to embrace what the future holds. Come what may.
    When I grow up
    I will be brave enough to fight the creatures
    that you have to fight beneath the bed,
    each night to be a grown up.

Tengd vefslóð: 
Samþykkt: 
  • 20.6.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/33985


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni til B.A. gráðu í leiklist - Leitin að Fríðu Hugljúfu - Söngleikurinn Matthildur í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar.pdf669,09 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna