is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Tónlistardeild / Department of Music > Lokaritgerðir / Theses (BA, B.Mus) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33991

Titill: 
  • Míkrótónar : takmarkanir þeirra og möguleikar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessari er ætlað að gefa lýsandi yfirlit yfir stöðu og stefnu míkrótóna í tónlist í dag, takmarkanir þeirra og möguleika.
    Efninu er skipt í þrjá meginkafla: skynjun (hvernig við heyrum og upplifum míkrótóna), miðlun (hvernig við byggjum upp þekkingu á míkrótónum og miðlum henni okkar á milli og til næstu kynslóða) og framköllun (hvernig við köllum fram og spilum míkrótóna).
    Vegna fjölda af nýjum hugtökum og þýðingum þeirra má finna viðauka A aftast sem hefur þann tilgang að gefa íslenskar-enskar þýðingar á tónlistarhugtökum og útskýra þau ítarlegar. Hugtakalistinn er kaflaskiptur eftir viðfangsefni og eru atriði hans því í merkingarfræðilegri röð frekar en stafrófsröð. Ætlunin er sú að viðaukinn geti staðið sjálfstætt og brúi bilið á milli raungreina eins og stærðfræði, eðlisfræði, verkfræði og tölvunarfræði annars vegar og tónlistarfræða hins vegar, sem einskonar kennsluhefti. Í viðauka B er greint frá hugbúnaði sem minnst er á í ritgerðinni með skjáskotum ásamt kostum og göllum við notkun þeirra.
    Helstu niðurstöður eru þær að fræði míkrótóna, í senharmónískum (e. xenharmonic) skilningi, sé opinn vettvangur fyrir frekari rannsóknir, hugbúnaðarþróun, kennsluefni og tónsmíðar með aukinni tækniþróun 21. aldar.

Samþykkt: 
  • 20.6.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/33991


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerd BA Tonsmidum - Bjarki Hall - Mikrotonar.pdf2,16 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna