Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/34059
Þessi ritgerð fjallar um Íslendingasögurnar og það erindi sem þær eiga í námsefni grunnskóla. Þá er litið til þeirra hæfniviðmiða sem sett eru fram í Aðalnámskrá grunnskóla og þess hlutverks grunnskóla að efla siðgæðisvitund. Samkvæmt lögum skal grunnskólinn leggja áherslu á ýmsa þætti sem eru ekki tileinkaðir einstaka námsgreinum heldur skulu vera hafðir að leiðarljósi í öllu starfi grunnskólans (Aðalnámskrá, 2011). Einn þessara þátta er siðgæðisvitund eða siðvit, sem snýst um það að nemendur auki siðferðisþroska sinn og að þeir geti sett sig í annarra manna spor. Í lokin eru sett fram kennsluverkefni úr valdri Íslendingasögu, Gísla sögu Súrssonar þar sem markmiðið er að fara yfir flest þau hæfniviðmið sem fram koma í íslenskuhluta Aðalnámskrár.
Ég tel að Íslendingasögurnar henti einkar vel í kennslu í grunnskóla og að lestur þeirra geti aukið áhuga margra nemenda á lestri. Allir hafa gaman af því að heyra eða lesa skemmtilega sögu en það er sennilega helsta skýringin á vinsældum Íslendingasagnanna, hvað þær eru skemmtilegar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed ritgerð - Binný Einarsdóttir.pdf | 530.1 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
yfirlýsing_Binný.pdf | 476.49 kB | Lokaður | Yfirlýsing |