Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3407
Árangur tíu tíma hópmeðferðar við kvíðaröskunum barna var rannsakaður. Hann var
borinn saman við árangur af sex tíma samskonar meðferð sem var athugaður árið
2005. Aðalmarkmið rannsóknarinnar var því að sjá hvort fjögurra tíma viðbót, sem
innihélt námsefni um félagsfærni, ákveðni og þrautalausn, myndi bæta árangurinn.
Hópmeðferðin var haldin á BUGL og þátttakendur voru börn á aldrinum 7-13 ára og
foreldrar þeirra (N=4). Börnin voru ýmist greind með ofurkvíðaröskun,
aðskilnaðarkvíða eða áráttu-og þráhyggjuröskun. Árangurinn var fundinn með
stöðluðum spurningalistum sem mátu kvíðaeinkenni (MASC), tilfinningaleg
vandamál, erfiðleika í hegðun, félagsfærni, samskiptavanda (SDQ) og
þunglyndiseinkenni (CDI). Einnig var lagður fyrir listinn Huglægt mat á kvíðahegðun
barnsins þíns og listi sem mat ánægju foreldra með hópmeðferðina. Þátttakendur
svöruðu spurningalistunum fyrir meðferð, eftir sex tíma og eftir tíu tíma. Skor listanna
voru borin saman við skor tilrauna-og samanburðarhóps rannsóknarinnar frá árinu
2005. Helstu niðurstöður voru þær að árangur lengri meðferðar var sá sami og styttri
meðferðar. Eftir sex tíma meðferð var marktæk lækkun á heildarskori SDQ hjá báðum
tilraunahópum og lækkun á MASC þó hún hafi ekki verið marktæk. Engin lækkun
varð á Samskiptavanda og engin hækkun á Félagsfærni. Meðferðin virtist því ekki
hafa áhrif á félagsfærni. Töluverð lækkun var á CDI í þessari rannsókn en hækkun
varð í rannsókn ársins 2005 og því ekki hægt að draga ályktun um áhrif
meðferðarinnar á þunglyndiseinkenni. Töluverð lækkun átti sér stað á huglægu mati
foreldra á kvíðahegðun barnsins hjá báðum tilraunahópum og var hún marktæk eftir
sex tíma í meðferð. Foreldrum fannst því meðferðin bera árangur og voru þeir
jafnframt mjög ánægðir með hana samkvæmt ánægjulistanum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lydia_og_Unnur_fixed.pdf | 878.02 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |