en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/34117

Title: 
  • Title is in Icelandic Geta hreyfihamlaðir unglingar sótt sína félagsmiðstöð út frá aðgengi? : mikilvægi tómstunda fyrir hreyfihamlaða unglinga
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Félagsmiðstöðvar skipa veiga mikinn sess í lífi margra unglinga á unglingsárunum. Það vakti athygli mína eftir að hafa starfað í félagsmiðstöð í Reykjavík að aðgengi fyrir hreyfihamlaða er misjafnt í félagsmiðstöðvum. Ástæða fyrir vali á þessu efni er að rannsakandi er hreyfihamlaður og hefur rekist á ákveðnar hindranir í starfi sem frístundaleiðbeinandi hjá Reykjavíkurborg. Hreyfihamlaðir hafa ekki eins mikil tækifæri á að stunda tómstundir þar sem margar tómstundir snúast um hreyfingu. Tómstundir á unglingsárunum eru mikilvægar til að efla félagsþroska og sjálfsmynd. Farið var í heimsókn í a.m.k. eina félagsmiðstöð frá hverri frístundamiðstöð Reykjavíkurborgar sem eru fimm talsins. Rannsakandi er í hjólastól og athugaði hversu langt hann kæmist í félagsmiðstöðinni áður en það kom hindrun. Hvort sem að sú hindrun var inni í félagsmiðstöðinni eða fyrir utan hana. Niðurstöður sýna að í sumum félagsmiðstöðvum voru engar hindranir fyrir hreyfihamlaða á meðan aðrar félagsmiðstöðvar voru með mjög lélegt aðgengi og ekki hægt að komast inn í þær hjálparlaust.

Accepted: 
  • Jun 25, 2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/34117


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Geta hreyfihamlaðir unglingar sótt sína félagsmiðstöð út frá aðgengi? - Lokaksil - PDF.pdf1.47 MBOpenComplete TextPDFView/Open
Gunnar_Haraldsson.pdf68.61 kBLockedYfirlýsingPDF