Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/34194
Þessi ritgerð fjallar um mikilvægi foreldra í forvörnum gegn vímuefnaneyslu unglinga. Fréttir af ótímabærum dauðsföllum vegna vímuefnaneyslu berast okkur alltof oft og því er mikilvægt að sinna forvörnum eins vel og við getum. Allir þættir í umhverfi unglinga þurfa að vinna saman en sú vinna hefst oftar en ekki á heimilum hjá foreldrum eða forráðamönnum. Það er mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir hlutverki sínu í lífi unglinga og hafi í huga allt það sem þeir geta gert til þess að forða þeim frá vímuefnaneyslu. Verkefnið skiptist í tvo hluta, greinargerð og handbók. Í greinargerðinni er efnið sett í fræðilegt samhengi, hugtök skilgreind og gert grein fyrir rannsóknum á sviðinu. Handbókin er ætluð foreldrum og tekur saman það sem foreldrar þurfa að hafa í huga þegar kemur að því að forða unglingum frá vímuefnaneyslu.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| 2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16.pdf | 199,06 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
| Handbókin.pdf | 293,92 kB | Opinn | Handbók | Skoða/Opna | |
| Greinargerðin.pdf | 408,78 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |