Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/33813
Í september mánuði 2008 skiluðu verkfræðistofurnar Efla og Almenna verkfræðistofan skýrslu um mögulega þjónustuhöfn á Norðausturlandi í tengslum við olíuleit á Drekasvæðinu. Ekkert varð af áformum um uppbyggingu þjónustuhafnar vegna olíuleitar en verkfræðistofan Efla hélt áfram að skoða möguleikan á byggingu hafnar- og iðnaðarsvæðis á Norðausturlandi, nánar tiltekið í Finnafirði. Mikið vatn hefur runnið til sjávar og nú er svo komið að raunhæfar líkur eru á því að risavaxin uppbygging á hafnar- og iðnaðarsvæðis í Finnafirði verði að veruleika á komandi árum.
Markmið þessarar ritgerðar er að greina hvað verkefnið getur skilað miklum tekjum til þeirra sem að því standa, hve miklar fjárfestingar þarf að ráðast í svo verkefnið geti orðið að veruleika og gerð fjárhagsáætlana fyrir félögin sem að verkefninu standa. Greiningar á sjóðstreymi, fjárfestingum og tekjum sýna að verkefnið mun skila miklum verðmætum til eiganda sinna. Einnig sýna rekstraráætlanir fram á að verkefnið getur skilað miklum hagnaði á líftíma sínum.
Lykilorð: Finnafjörður, Umskipunarhöfn, Hafnarrekstur, Efla
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_bsc_Finnafjordur PDF.pdf | 2.41 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |