is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/33074

Titill: 
  • Hagræn- og umhverfisleg áhrif rafbílavæðingar í Vestmannaeyjum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Aukin losun gróðurhúsalofttegunda á undanförnum áratugum hefur stuðlað að vitundarvakningu á meðal stjórnvalda víðsvegar um heim sem og almennings. Mannkynið er á krossgötum vegna loftslagsbreytinga. Síaukin losun koltvísýrings og áhrif hans á hlýnun jarðar gerir það að verkum að orkuskipti eru ekki lengur einungis æskileg heldur eru þau orðin nauðsynleg. Með því að skipta út hinum hefðbundnu orkugjöfum sem fela í sér bruna jarðefnaeldsneytis og auka notkun á þeim endurnýjanlegu verða orkuskipti. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hver hagræn- og umhverfisleg áhrif eru ef íbúar í Vestmannaeyjum myndu rafvæða fólksbílaflota sinn. Sviðsmyndagreiningu er beitt við úrvinnslu verkefnisins þar sem kannað er hvaða áhrif rafbílavæðing hefur á kostnað við kaup á orkugjafa, losun gróðurhúsalofttegunda, á ríkissjóð og fjárhag sveitarfélagsins ásamt nálgun við loftslagsmarkmið Íslands. Í greiningunni er stuðst við þrjár sviðsmyndir. Ein þeirra felur í sér algjöra rafmagnsbílavæðingu, önnur rafmagnsbílavæðingu í bland við sprengihreyfilsbíla (ICE) og sú þriðja snýr að rafmagnsbílavæðingu til helmings á móts við tengiltvinnbíla (PHEV). Gögn frá Samgöngustofu verða notuð við gerð verkefnisins. Gögnin sýna alla fólksbíla (M1) sem skráðir eru í Vestmannaeyjum ásamt ítarlegum upplýsingum um þá. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að við rafbílavæðingu verður sparnaður við kaup á orkugjöfum sem nemur allt að 392 milljónum kr. Auk þess verður mikil minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda sem hleypur á allt að 4.228 tonnum á ári. Þá fjármuni sem sparast er hægt að nýta í annað og smærra kolefnisspor kemur Íslendingum nær markmiðum Sameinuðu þjóðanna í loftslagsmálum. Íbúar Vestmannaeyja geta sett fordæmi fyrir önnur sveitarfélög á Íslandi sem og á heimsvísu með því að stíga skref í átt að rafmagnsbílavæðingu.

Samþykkt: 
  • 16.5.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/33074


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hagræn- og umhverfisleg áhrif rafbílavæðingar í Vestmannaeyjum.pdf1.21 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna