Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/34357
Í þessari ritgerð er athugað hvort Kristnihald undir Jökli (1968) eftir Halldór Laxness geti verið undir áhrifum frá Drakúla (1897) eftir Bram Stoker og/eða Makt myrkranna (1901), sem er þýðing/túlkun Valdimars Ásmundsonar á Drakúla. Tilefnið til að kanna þetta er margskonar líkindi milli bókanna og athugasemd Halldórs Laxness um Makt myrkranna í kaflanum „Að skrifa upp úr sér“ í minningabók hans, Í túninu heima frá 1975. Upp eru talin tólf líkindi milli Kristnihaldsins og Drakúla og átta milli Kristnihaldsins og Maktar myrkranna. Einnig finnast textabrot í Kristnihaldinu og Makt myrkranna sem benda til að Halldór hafi orðið fyrir orðavalsáhrifum frá lýsingum í verki Valdimars þegar hann skapaði persónuna Úu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
VenusHelena.pdf | 475.85 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
bjarni yfirlýsing.JPG | 60.82 kB | Lokaður | JPG |