Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/34414
Það hefur lengi verið talið rúm til að ráðast í heildstæða endurskipulagningu á lögregluumdæmum á Íslandi í þeim tilgangi að auka skilvirkni lögreglunnar og bæta þjónustu. Lengi vel voru sýslumenn lögreglustjórar í sínu umdæmi en með árunum hefur aukin áhersla verið lögð á sérhæfingu lögregluembættanna með fækkunum embætta og sérstökum lögreglustjórum. Umfangsmiklar breytingar urðu á skipan embættanna árið 2007 og aftur árið 2015, sem byggðu á umræðu sem átti rætur sínar í hugmyndafræði nýskipanar í ríkisrekstri og þeim fjölmörgu skýrslum sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið lét vinna milli 2003 og 2009. Í þessari rannsókn er kannað hvort nauðsynlegt gæti verið að fækka lögregluembættum á Íslandi til þess að auka starfsgetu þeirra. Verður skipan lögregluembættanna og sú vinna sem hefur farið fram til þess að meta stöðu þeirra skoðuð og sett í samhengi við kenningar japanska stjórnmálafræðingsins Francis Fukuyamas um mælingu á gæðum stjórnsýslueininga, ásamt því að tengja við þær kenningar um árangursstjórnun. Niðurstaða ritgerðarinnar sýnir að samkvæmt greiningalíkani Fukuyamas og með tilliti til árangursstjórnunar sé fækkun eða a.m.k. breyting skipunar lögregluembætta á Íslandi æskileg til framtíðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð Alex Lee Rosado-pdf.pdf | 742,37 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Meðferð lokaverkefnis skemma.pdf | 1,32 MB | Lokaður | Yfirlýsing |