Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/34489
Sú mikla aukning í heimsóknum erlendra ferðamanna til Íslands undanfarin ár hefur opnað augu Íslendinga fyrir þeim tækifærum sem ferðaþjónusta hefur í för með sér fyrir íslenskt efnahagslíf. Samhliða auknum vexti í starfgreininni hafa stjórnvöld á Íslandi sett meiri áherslu á uppbyggingu innviða fyrir ferðaþjónustuna ásamt því að mikil aukning hefur verið í námi tengdu ferðamennsku. Ferðaþjónusta er stór og fjölþætt atvinnugrein og er henni skipt í margar undirgreinar sem allar hafa mismunandi áherslur. Ein af þessum undirgreinum snýr að ferðalögum hjá okkar smæðustu samfélagsþegnum, hreyfihömluðum og öldruðum, og heitir hún aðgengileg ferðaþjónusta. Aðgengileg ferðaþjónusta gengur í grófum dráttum út á að veita öllum jafnt tækifæri á við aðra samfélagshópa til þess að ferðast og upplifa ferðalög án þess að verða fyrir alvarlegum hindrunum á ferðalagi sínu. Í þessari BS-rannsókn tókum við fyrir þrjá vinsæla ferðamannastaði á Norðausturlandi Íslands, Ásbyrgi, Dimmuborgir og Jarðböðin á Mývatni, og skoðuðum við aðgengismál á stöðunum með vettvangsathugunum sem við framkvæmdum ásamt því að taka viðtöl við þrjá hjólastólanotendur um þeirra upplifun á aðgengismálum. Niðurstöður leiddu í ljós að aðgengi var víða ágætt á þessum stöðum en þó kom það fram í viðtölunum að mikið vantar upp á upplýsingargjöf til hjólastólanotenda á þessum ferðamannastöðum sem og öðrum.
Lykilorð: Dimmuborgir, Ásbyrgi, Jarðböðin á Mývatni, Aðgengileg ferðaþjónusta, upplýsingajöf, hjólastóll
The large increase in foreign tourists that visit Iceland in recent years has opened the eyes of Icelanders to the opportunities that tourism has for the Icelandic economy. Along with the increased growth in the profession, the authorities in Iceland have placed greater emphasis on infrastructure development for the tourism industry, and there has been a significant increase in tourism-related education. Tourism is a large and diverse industry and is divided into many sub-sectors, all of which have different emphases. One of these sub-sectors is about traveling with our weakest members of the community, people with disabilities and the elderly, and it is called accessible tourism. Accessible tourism is broadly concerned with providing disabled people with equal opportunities as other community groups to travel and experience travel without facing serious obstacles during their journey. In this BS study, we examined three popular tourist locations in Northeast Iceland, Ásbyrgi, Dimmuborgir and Mývatn earth baths, and inspected accessibility of the sites from a site study we conducted as well as examining the three interviews we took and looked into the interaction between the two. Findings revealed that accessibility was generally good at these sites, however, there was a special impression in the interviews that we found that there was a great deal of lack of information on these tourist sites as in other tourist sites.
Keywords: Dimmuborgir, Ásbyrgi, Jarðböðin á Mývatni, accsible tourism, accessible information, wheelchair
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Egill Rúnar Björgvinsson og Sveinn Skorri Höskuldsson.pdf | 3,23 MB | Lokaður til...01.01.2039 | Heildartexti | ||
| 1720_190930215922_001.pdf | 287,57 kB | Lokaður | Yfirlýsing |