Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/34523
Ritgerð þessi er tvíþætt. Annarsvegar er fjallað um nám og kennslu í tölvu- og tæknimennt sem er að mati höfundar afar mikilvæg fyrir framtíð nemenda. Gerð er grein fyrir á hvaða rökum það mat er byggt og þeim þáttum sem höfundur telur mikilvæga til að undirbyggja slíkt nám. Til að ná þeim markmiðum að bæta nám og kennslu í tæknimennt var valið að vinna með Arduino örtölvuna. Arduino hentar vel til að kynna nemendum grunnatriði í forritun, rafmagnshringrásum og rafeindatækni. Auk þess geta nemendur hannað, skapað og leitað lausna við alls kyns vandamál í ferlinu. Til að ná sem bestum árangri er horft til þátta sem eru til þess fallnir að gera námið aðgengilega og áhugaverðara. Eitt af lykilatriðum þessarar greiningar er að horfa í gegnum kynjagleraugun.
Hinsvegar er hér um að ræða kennsluefni í Arduino fræðum sem sett er saman með hliðsjón af þeim þáttum sem fjallað er um í fyrri hluta verkefnisins. Kennsluefnið er á rafrænu formi og mun verða aðgengilegt öllum á slóðinni: https://sites.google.com/view/namsvefur. Von höfundar er að sú nálgun á námsefnið sem hér er valin reynist nemendum vel og vinni gegn hefðbundnum hugmyndum um tækninám og forritun, sérstaklega með tilliti til staðlaðra kynjahlutverka.
This thesis has two main themes. First, computer and technical education is
examined. Such education is, in the author´s opinion, extremely important for
the future of students. The reasoning for that opinion along with the factors
necessary to structure computer and technical education are conveyed. The
Arduino microcomputer is very suitable for teaching the basics of
programming, electrical circuits and electronics and is used to achieve the
goals of technology education. During the learning process, the students can
design, create and solve all kinds of problems. The features that make learning
accessible and more interesting are researched. One of the key points of this
analysis is viewing the issue from the point of gender.
Secondly, this thesis results in a teaching material in Arduino studies based
on the factors discussed in the first part of the thesis. The material is an online
webpage that will be accessible to everyone via
https://sites.google.com/view/namsvefur. It is the author´s hope that the
approach to the teaching material will be beneficial to students and contest
established methods of technical education and programming, especially with
regard to traditional gender roles.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
medritgerd-skemman.pdf | 881.82 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |