Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/34616
Helsta viðfangsefni ritgerðarinnar og markmið hennar er að skoða tengsl einmanaleika meðal aldraðra á Íslandi við kyn, aldur, hjúskaparstöðu, félagslega stöðu, þunglyndi og kvíða auk neyslu áfengis og annarra vímuefna. Mikilvægt er að skoða þessa þætti svo hægt sé að varpa ljósi á líðan aldraðra á Íslandi og hvort einmanaleiki meðal hópsins sé útbreiddur. Hlúa þarf að velferð aldraðra þar sem þjóðin eldist hratt en talið er að frá árinu 2047 verði hópurinn í fyrsta sinn fjölmennari en einstaklingar undir tvítugu.
Í rannsókn þessari er unnið með fyrirliggjandi gögn úr stærri rannsókn þar sem sjálfsmatslistar voru lagðir fyrir fullorðna á aldrinum 60-90 ára og eldri. Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Halldór Sigurður Guðmundsson, dósent við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Greining gagna fór fram í tölfræðiforritinu SPSS og eru niðurstöður settar fram með lýsandi tölfræði, tíðnitöflum, fylgnitöflum, krosstöflum og línulegri fjölbreytuaðhvarfsgreiningu.
Helstu niðurstöður sýna að marktækur munur mælist á einmanaleika þegar horft er til kyns, aldurs, hjúskaparstöðu, félagslegrar stöðu og þunglyndis og kvíða. Einnig kom í ljós að þunglyndi og kvíði eykur marktækt neyslu áfengis og annarra vímuefna. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður fyrri rannsókna á viðfangsefninu.
Lykilorð: Aldraðir, einmanaleiki, félagsleg staða, þunglyndi, kvíði, sjálfsmatslistar, neysla áfengis, neysla vímuefna
The main objective of the thesis is to examine the correlation between the prevalence of loneliness in elderly people in Iceland and gender, age, marital status, social status, depression and anxiety and alcohol and substance use. It is of imperative importance to examine the aforementioned factors to explain the emotional well-being of elderly people in Iceland and to discern if loneliness is a widespread feeling amongst participants. It is estimated that from the year 2047, the elderly population of Iceland, will, for the first time outnumber persons under the age of twenty. It is thus vital to improve and foster the overall welfare and well-being of an ever-increasing aging population.
This research uses existing data from a larger study where self-assessment lists were filled out by people aged 60-90 years old and over. The study’s supervisor is Halldór Sigurður Guðmundsson, associate professor at the department of Social work, University of Iceland. Data analysis was conducted using the SPSS statistics software and results are portrayed with the use of descriptive statistics, frequency tables, coefficients tables, crosstabs and multiple linear regression.
Key results indicate a significant correlation between loneliness and the variables of gender, age, marital status, social status and depression and anxiety. Furthermore, results yielded that levels of depression and anxiety significantly increase alcohol and substance use of participants. These results are comparable to prior research on the topic.
Keywords: Elderly, loneliness, social status, depression, anxiety, older adult self-report, alcohol use, substance use
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
mpr2_MA_ritgerð.pdf | 1.68 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman_yfirlysing.pdf | 338.17 kB | Lokaður | Yfirlýsing |