Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/34838
Kennsluverkefni þessu er ætlað að vekja fólk til vitundar um þær staðreyndir að það eru örfá á síðan konur fengu réttindi á við karlmenn, þó má segja að það hafi ekki náðst fullkomlega. Íslenskar konur eru þó mjög framalega í þeirri baráttu sem skók alla Evrópu þegar konur tóku á það ráð að mennta sig og fara fram á sögmu réttindi og laun eins og karlmenn. Með tilkomu hins almenna prestdóms sem Martein Lúther setti fram myndaðist möguleiki fyrir konur að hljóta menntun og komast frá erfðasyndinni og mæðrahyggjunni. Ekki liggja fyrir margar rannsóknir þegar kemur að konum og listum í lútherskum skilningi,
þó hafa konur verið að leggja sig fram um að greina rit og þau bréf sem liggja eftir Lúther.1 Finna má í ritum hans hvaða stöðu konur höfðu á 16. öldinni.2 Þar eru mörg merkileg rit sem meðal annars fjalla um konur og þeirra örlög.3 Einnig rit um listir og
skurðgoðadýrkun þar sem hann réttlætir tilvist listaverka. Lúther var tónelskur og liggur eftir
hann talsvert af tónlist sálmum og ljóðum. því má segja að þessa rit fjalli um stöðu kvenna á siðbóta tíma til dagsins í dag þegar konur eru enn að verða fyrstar af konum til hinna ýmsu verk. þetta er kennsluverkefni sem liggur fyrir í þremur hlutum. Leshefi, guðfræðilegur rökstuðningur og kennslufræðimappa.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
skilaverkefni Mag.theol fullbúið 10.1.2020.pdf | 2.84 MB | Locked Until...2025/01/10 | Front Page | ||
yfirlýsing.jpg | 967.28 kB | Locked | Declaration of Access | JPG |
Note:
þetta verkefni er unnið sem kennsluverkefni og því lokað í fimm ár.