Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/34880
Tilgangur verkefnisins var að gera samanburð á stofn- og rekstrarkostnaði tveggja mismunandi loftræsikerfa til að fá vísbendingu um hvort kerfið væri betri kostur til lengri tíma litið fyrir fyrir sambærilegar byggingar. Loftræsikerfi með breytilegt loftmagn (VAV), hannað árið 2012, var endurhannað sem loftræsikerfi með stöðugu loftmagni (CAV). Bæði kerfi voru magntekin og ný verð fengin í alla íhluti kerfa til að samanburður yrði sem nákvæmastur. Farið var yfir kosti og galla VAV og CAV kerfa og orkunotkun reiknuð út frá kæli- og varmaþörf loftræsikerfanna. Stofn- og rekstrarkostnaður var borinn saman og núvirtur, einnig var gerð næmnigreining miðuð við raforkuverð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_2019_skil.pdf | 10.69 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |