is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/34994

Titill: 
  • Hvernig gengur kennurum að taka á einelti? : samanburður á rannsóknum 2003 og 2019
  • Titill er á ensku How do teachers fare at resolving bullying? : comparison of essays from 2003 and 2019
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Einelti er alvarlegt vandamál í skólum og getur valdið sálrænum og félagslegum erfiðleikum. Mikilvægt er að kennarar geti tekið á eineltismálum af öryggi og þekkingu ásamt því að vinna að forvörnum gegn einelti en skortur á fræðslu um einelti getur komið í veg fyrir slíkt. Eftirfarandi ritgerð er unnin í þeim tilgangi að skoða hvernig kennurum gengur að taka á einelti í grunnskólum 16 árum eftir að rannsókn þess efnis var gerð hér á landi árið 2003 af Vöndu Sigurgeirsdóttur. Framkvæmd var megindleg rannsókn, úrtakið voru 417 kennarar og leiðbeinendur í tíu skólum á landinu og var svarhlutfallið 31%.
    Áhersla var lögð á spurningalista úr fyrri rannsókn Vöndu ásamt nokkrum breytingum á honum. Spurningalistinn var forprófaður eftir breytingar rannsakanda. Kennararnir voru beðnir um að svara 43 spurningum og leggja mat sitt á hvernig þeim gengur að taka á einelti og hvort þeir telji sig hafa fengið næga fræðslu og undirbúning til að takast á við slík tilfelli.
    Rannsóknarspurningar ritgerðarinnar eru eftirfarandi: Hvernig undirbúning segjast kennarar hafa fengið í námi sínu sem býr þá undir að taka á einelti í starfi og hvernig meta þeir hann? Hefur viðhorf íslenskra kennara til eineltis breyst á síðastliðnum 16 árum? Hvernig gengur kennurum að koma auga á einelti? Hvernig gengur kennurum að taka á einelti og hvað hindrar þá helst að taka á einelti með árangursríkum hætti?
    Niðurstöður leiddu í ljós að 99,2% kennara sem tóku þátt í rannsókninni telja að þeir þurfi stuðning við að taka á eineltismálum. Einnig kom fram að kennurum finnst þeir ekki hafa fengið nægan undirbúning í sínu námi, 91,9% kennara hefði viljað meiri fræðslu. Þar voru nefndir þættir eins og viðtalstækni, að halda uppi góðum bekkjaranda og samskipti við foreldra. Aðeins 35% kennara töldu fræðsluna í sínu námi góða. Niðurstöður benda einnig til að kennarar sem útskrifuðust eftir að námið var lengt í úr þremur í fimm ár hafi ekki fengið næga fræðslu í sínu námi að þeirra mati. Einnig kom í ljós að ekki hefur mikið breyst síðan 2003 en kennarar þá vildu einnig aukinn stuðning og meiri undirbúning í sínu námi til að takast á við einelti.
    Niðurstöður þessarar rannsóknar eru taldar styrkja eldri rannsóknir sem gerðar hafa verið um menntun og fræðslu grunnskólakennara í eineltismálum á Íslandi. Í ritgerðinni er fjallað um notagildi þessara niðurstaðna en þær má meðal annars nota til að setja fram tillögur um aukna þjálfun og fræðslu um einelti í kennaranámi ásamt fræðslu fyrir starfandi kennara og skólastjórnendur.

  • Útdráttur er á ensku

    Bullying is a serious problem within schools that can cause social and psychological problems. It is important that teachers can react to bullying with confidence and knowledge in addition to using prevention methods available against it, but a lack of training has prevented this. The goal of this essay is to explore how teachers are managing to tackle
    bullying in schools today, 16 years after a similar essay was released in the year 2003 here in Iceland by Vanda Sigurgeirsdóttir.
    A quantitative study was performed where the sample were all teachers and instructors in 10 schools and the answer ratio was 31%. The goal was to have the questionnaire similar to the previous essay of Vanda with some minimal changes. The questionnaire was pretested after the researcher’s changes. Teachers were asked to answer 43 questions and estimate how they feel they are able to tackle bullying and if they feel that have received enough education to be able to tackle it. The essays research questions are: What preparation do teachers feel they have received trough their studies that prepares them to tackle bullying when on the job? How do they rate that preparation? Have teachers feelings in regards to this preparation changed in the last 16 years? How good are teachers at spotting bullying? How good are teachers at tackling bullying and what stands in their way when tackling bullying?
    The results show that 99,2% of those who answered the questionnaire feel they need additional support to tackle bullying. The study also shows that 91,9% of teachers feel they did not receive enough preparation in their studies to tackle bullying. The main areas where teachers feel they could get better preparation was in interviewing techniques, creating a good class spirit and communication with parents. Only 35% thought the preparation from their studies was good. The results also indicate that teachers that graduated after the study was lengthened to 5 years felt they did not receive enough preparations. It was also apparent that not much has changed since 2003 as teachers in both studies wanted more support and better preparation in their studies to tackle bullying.
    The results of this essay are the same as of older essays that have been done about the education of primary school teachers and their ability to tackle bullying in Iceland. These results can be used to put together propositions of increased training and education on bullying teacher studies and within the schools as a workplace for working teachers and
    school administrative staff.

Samþykkt: 
  • 25.2.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/34994


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Berglind_Ósk_Kristjánsdóttir_M.Ed_1.0.pdf1,46 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
img-200126172423.pdf244,31 kBLokaðurYfirlýsingPDF