Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/34996
Verkefni þetta er 10 ECTS-eininga lokaverkefni til BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði sem samanstendur af greinargerð og fræðsluefni um tengslavanda barna. Tengslavandi myndast þegar foreldrar bregðast þörfum barna sinna svo sem vegna neysluvanda, andlegra og líkamlegra veikinda, skort á hæfni, vanrækslu eða ofbeldis. Verður umfjöllunin hér afmörkuð við tengslavanda barna sem hafa búið við misbrest í uppeldi (e. adverse caregiving enviroments) sem felur í sér óviðunandi uppeldisskilyrði í formi vanrækslu og ofbeldis. Tengslavandi getur verið misjafn á milli barna og birtingarmynd hans flókin eftir aðstæðum. Hann hefur mikil áhrif á taugaþroska barna sem getur haft alvarlegar afleiðingar á velferð þeirra út lífið.
Í greinargerðinni má finna fræðilega umfjöllun um tengslavanda og tengslamynstur í samhengi við taugaþroska barna. Stuðst verður við þverfaglegar rannsóknir og ritrýndar fræðigreinar meðal annars á sviði taugavísinda og þroskasálfræði ásamt útgefnu efni íslenskra og erlendra fræðimanna. Hlutverk greinargerðarinnar er að styðja og færa rök fyrir því efni sem fram kemur í fræðsluefninu. Markmið fræðsluefnisins er að vekja athygli og auka skilning á myndun tengslavanda, birtingarmynd hans í hegðun barna og þeim þörfum sem liggja þar að baki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Barnið í bátnum Tengslavandi barna sem alast upp við misbrest í uppeldi.pdf | 592,4 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Barnið í bátnum fræðsluhandbók.pdf | 11,14 MB | Opinn | Fræðsluhandbók | Skoða/Opna | |
eddayfirlysing.pdf | 20,67 kB | Lokaður | Yfirlýsing |