is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35037

Titill: 
  • Árangursrík vöruþróun? Einkennandi þættir í vöruþróunarferli fyrirtækja á Íslandi og hlutverk neytenda í ferlinu
  • Titill er á ensku Successful product development? Key elements in the product development process within companies in Iceland and the role of conumers in the process.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar rannsóknarskýrslu snýr að greiningu og framsetningu lykilþátta í vöruþróunarferli fyrirtækja á Íslandi. Rannsakað var hvort íslensk fyrirtæki stundi vöruþróun á árangursríkan hátt, með hliðsjón af þátttöku hins almenna neytanda. Rannsóknin var framkvæmd með blönduðum rannsóknaraðferðum, þá hvort tveggja eigindlegum og megindlegum. Skyggnst var inn í vöruþróunarferli fyrirtækja á mismunandi mörkuðum þar sem tekin voru viðtöl við sérfræðinga á fræðasviðinu og rýnt var í fyrri rannsóknir á viðfangsefninu. Þá var spurningakönnun lögð fyrir almenning. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara var: Hvernig er vöruþróun íslenskra fyrirtækja háttað og hvert er hlutverk neytenda í ferlinu?
    Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir á fyrirliggjandi fræðum sem og fyrri rannsóknum á viðfangsefninu. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar fram með þemagreiningu, myndrænum hætti og lýsandi tölfræði. Að lokum má finna hagnýtar tillögur sem ætlað er að hafa leiðbeinandi gildi fyrir fyrirtæki sem bæta vilja vöruþróunarferli sitt.
    Athuga skal að ekki er unnt að alhæfa niðurstöður rannsóknarinnar yfir á öll fyrirtæki á Íslandi né skýrir hún frá þátttöku allra Íslendinga en þó gefur hún greinargóða mynd af raunverulegri stöðu vöruþróunarmála hér á landi. Niðurstöður benda til þess að skortur er á stefnumótunarvinnu og markaðsrannsóknum tengdum vöruþróun innan íslenskra fyrirtækja. Greining á markaðsumhverfinu er gríðarlega mikilvæg þar sem mikil samkeppni er. Mikilvægt er að greina þarfir og kröfur neytenda áður en farið er út í þróunarferlið og með því að hafa neytandann með í ferlinu er auðveldara að uppfylla þarfir viðskiptavinarins. Að síðustu er mikilvægt að stjórnendur hafi í huga að vöruþróun er fjölþætt ferli sem krefst þess að því sé sinnt að alvöru. Neytendur geta tekið enn frekar þátt í ferlinu og mikið svigrúm er til úrbóta á sviði vöruþróunar hér á landi.

  • Útdráttur er á ensku

    The subject of this research report is to analyse and present the key elements in the product development process within companies in Iceland. Companies in Iceland were analyzed with the purpose of identifying if the product development process is successful. The role of consumers in the process was taken into consideration. The research categorizes as mixed methods, where both quantative and qualitative research methods were conducted. Interviews were taken with specialists in the field of product development within Icelandic companies and a questionnaire was shared with the public. The research question was: How is the product development process conducted within Icelandic companies and what is the role of consumers within the process?
    The theoretical background is based on existing academic studies on the subject and previous researches. Results are presented with theme coding, graphics and descriptive statistical data. Finally practical guidelines will be presented, which are supposed to provide suggestive value for companies that want to strengthen their product development procedure.
    The results do not provide a generalized opinion of all companies in Iceland nor the whole Icelandic public but it does provide a comprehensive idea of the current status of product development here in Iceland. The overall findings of the research indicate that a lack of strategic management and marketing researches connected to product development can be found within companies in Iceland. It‘s important to research what the actual needs and demands of the consumers are before starting the development process and by involving the consumer in the process, fulfilling the needs and demands is more likely to be successful. Lastly, it‘s important to understand that the product development process is a multistep process and can not be thought of as only a side job. Consumers can take more part in the process and there is room for improvements within product development in Iceland.

Samþykkt: 
  • 12.3.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/35037


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HelenaRosTryggvadottir_BS_lokaverk.pdf1.17 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna