is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/35086

Titill: 
  • Sem hagl er höfðingjans tár: Blóðrauð hagltár íslenskra miðaldabókmennta
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilfinningalýsingar íslenskra miðaldabókmennta eru margar og fjölskrúðugar. Sumar þeirra eru vel þekktar en aðrar síður. Tilfinningalýsing sem lítið hefur verið rannsökuð er sú einstaka myndlíking að líkja tárum við hagl og blóð eða blóðrauð hagltár. Myndlíkingin kemur fyrir í ólíkum tegundum sagna á löngu tímabili og virðist hafa verið vel þekkt stílbragð. Í þessari ritgerð er ígrundað hvernig nota megi myndlíkingu blóðrauðra hagltára til þess að varpa ljósi á framsetningu tilfinninga í íslenskum miðaldabókmenntum. Í því skyni er beitt tvíþættri nálgunaraðferð sem byggir á að greina annars vegar sögulega þróun og uppruna myndlíkingarinnar og hins vegar birtingarmynd hennar sem orðræðu í bókmenntalegu samhengi, mótuð í senn af félagslegum og líkamlegum þáttum.
    Aðferðafræðin er útlistuð í fyrsta hluta ásamt yfirferð á fræðilegum bakgrunni tilfinningafræða sem skiptir máli fyrir greiningu síðari kafla. Færð eru rök fyrir því að til þess að greina tilfinningar í miðaldabókmenntum geti verið farsælt að líta til einnar örsmárrar einingar texta, myndlíkingar blóðrauðra hagltára, þar sem þekkt minni geta verið til marks um tilfinningatjáningu sem stór hluti áheyrenda á miðöldum hefur getað borið kennsl á og skilið. Enn fremur er sýnt hvernig gagnlegt getur reynst að skilgreina myndlíkinguna sem einkenni tiltekinnar orðræðu um tilfinningar.
    Annar hluti sýnir hvernig myndlíkingin þróast í sögulegu samhengi innan íslenskra miðaldabókmennta, og hvernig henni ber saman við evrópskar heimildir. Leiða má líkur að því að myndlíkingin hafi þróast sjálfstætt á Íslandi þar sem hún er greinilega mótuð af samfélagslegum aðstæðum þjóðveldisaldar, og stendur í nánum tengslum við hefndarskyldu. Þetta má sýna fram á með því að líta til handritavarðveislu texta sem innihalda dæmi um myndlíkinguna en einnig með bókmenntagreiningu á þeim sömu dæmum.
    Þriðji og síðasti hluti fer nánar í saumana á merkingarsviði blóðrauðra hagltára og þeirri orðræðu um tilfinningar sem hún miðlar. Sýnt verður hvernig hugmyndir miðalda um kynferði og kyngervi geta mótað hana en einnig lærð þekking um tengsl líkamsvessa við tilfinningar sem hugsanlega var íslenskum sagnariturum kunn. Að samanlögðu verður til haldgott yfirlit um sögulega þróun og merkingu blóðrauðra hagltára í íslenskum miðaldabókmenntum og þýðingu þeirra fyrir tilfinningar.

  • Útdráttur er á ensku

    Multiple and diverse descriptions of emotional expressions can be found in Icelandic medieval literature. Some of those are well known but others less so. The emotional expression of likening tears to hail and blood, or blood-red hail, has hitherto not received much attention. This unique metaphor is found in texts of different genres over a long period of time and seems to have been a well-known topos. The present study will consider how this metaphor can be used to shed light on the exposition of emotions in Icelandic medieval literature. For that purpose, a twofold approach is taken. Firstly, the origins and historical development of the metaphor is elaborated on and secondly, the metaphor is analysed as a literary discourse shaped by social and physical factors alike.
    The first part of this study discusses the methodology along with the theoretical background relevant for the analysis. It is argued that for the analysis of emotions in medieval literature it might prove useful to utilise a small unit of text as a focal point, namely the metaphor of blood-red tears, since well-known topoi might indicate an emotional expression easily recognisable for a majority of medieval audience. Furthermore, the first part defines the metaphor in question as characteristic of a particular discourse on emotion.
    The second part considers the historical development of the metaphor in the context of Icelandic medieval literature along with its continental context. It is deduced that the metaphor evolved independently in Iceland, since it is clearly marked by the societal conditions of the Icelandic Commonwealth and stands in close relation to feud and revenge. This is also supported by the manuscript evidence of the metaphor along with literary analysis.
    The third and final part of the study further discusses the semantic and signifying potential of the blood-red hail and its emotional discourse. The thesis will show how the discourse is shaped by medieval thoughts on sex and gender along with learned knowledge of humoral theory and its relation to human emotion, which seems to have been known to Icelandic compilers. Taken together, this study will provide a comprehensive survey of the historical development and meaning of the blood-red hail in Icelandic medieval literature and its relevance to emotions.

Samþykkt: 
  • 24.4.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/35086


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA_ADM.pdf509,23 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlysing.pdf739,31 kBLokaðurYfirlýsingPDF