Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35129
Þessi rannsókn er byggð á frásögnum fjögurra aðila sem eiga það sameiginlegt að stunda sjókajak róður. Þrír af þeim viðmælendum sem rætt var við hafa róið á sjókajak umhverfis Ísland og eru þeir leiðangrar viðfangsefni þessarar rannsóknar. Rannsóknarspurningin sem leitað er að því að svara er hvernig langir leiðangrar geta haft áhrif á einstaklinginn og hvernig getum við litið á ferðalagið út frá þjóðfræðilegum sjónarmiðum. Leiðangur umhverfis Ísland tekur um einn og hálfan til þrjá mánuði og á þeim tíma er einstaklingur að miklu leyti einn á ferðinni. Þá þurfa einstaklingar að byggja sér upp nýja rútínu og breyta sínu dagsverki. Þetta getur breytt veruhætti einstaklingsins lítillega á meðan á leiðangri stendur sem og eftir hann. Þá er leiðangurinn sjálfur ákveðinn jaðartími þar sem reglur leiðangurs gilda og menn eru að einhverju leyti á milli heima. Upplifanir sem einstaklingar lenda í á þessu ferðalagi geta breytt þeirra lífssýn og eru þá dæmi um það í þessari rannsókn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba ritgerð - Arndís Dögg Jónsdóttir..pdf | 1.09 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
0147_001.pdf | 55.24 kB | Lokaður | Yfirlýsing |