Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25082
Markmið þessa lokaverkefnis er að bera saman lífrænan sauðfjárbúskap við hefðbundinn með áherslu á rekstrarlega þætti.
Fengin voru gögn frá fimm bændum sem starfa við lífrænan sauðfjárbúskap og þau borin saman við gögn frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sem byggja á niðurstöðu búreikninga fyrir meðalbú í rekstrargrunni Bændasamtaka Íslands.
Niðurstaða úr verkefninu er sú að lífrænir sauðfjárbændur eru með minni framleiðslugetu en hefðbundnir sauðfjárbændur. Hefðbundnu sauðfjárbændurnir voru hinsvegar að verja meiri fjárhæðum í hvert innlagt kg. Fjárhagslega séð var munurinn á framleiðslu getunni meiri en munurinn á kostnaði bak við hvert innlagt kg. Þættir eins og aukin rýmisþörf og minni uppskera ræktaðs lands í lífrænum sauðfjárbúskap benda til að stofnkostnaður við lífrænt sauðfjárbú sé mun hærri. Mjög fá bú eru til skoðunar og því gefa niðurstöðurnar eingöngu vísbendingu um rekstrargjöld.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_jonmundur_magnus_gudmundsson.pdf | 562.88 kB | Opinn | Skoða/Opna |