Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/27991
Græn svæði og aðgengi að þeim eru mikilvæg fyrir lýðheilsu íbúa samkvæmt fjölda rannsókna. Reykjavíkurborg er með um 260 leiksvæði á sínum vegum víðsvegar um borgina sem eru í misgóðu ástandi. Ákveðið var að skoða hvernig ástand, nýting og notkun grenndarvalla væri eftir skipulagi og eignarhaldi þeirra? Tekin voru fyrir fjögur leiksvæði á litlu svæði í Fossvogi og var saga þeira skoðuð ásamt því að farið var á svæðin til að skoða notkun þeirra. Rætt var bæði við íbúa í hverfunum og starfsmenn borgarinnar. Leiksvæðastefna borgarinnar var skoðuð og svæðin metin út frá henni og hvort henni hefði verið fylgt eftir. Til samanburðar voru höfð þrjú önnur leiksvæði í eigu borgarinnar og eitt leiksvæði í eigu íbúa. Í ljós kom að eignarhald virðist ekki skipta máli þegar kemur að viðhaldi og nýtingu leikvallanna. Staðsetning og virkni og áhugi íbúa virðist skipta mestu máli. Það kom einnig í ljós að þó að leiksvæðastefnan sé vel gerð og áhugaverð þá eru vankantar á að unnið sé eftir henni og að allir starfsmenn borgarinnar viti af henni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_HeiðaÁgustdottir.pdf | 2.71 MB | Opinn | Skoða/Opna |