Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/35177
Í þessu verkefni var skoðaður fjöldi núverandi stöðugilda í kerskála Norðuráls í tvískiptu tólf tíma vaktakerfi annars vegar og mögulegan fjölda stöðugilda sem notast þyrfti við með þrískiptum átta tíma vöktum hins vegar. Þá verða settir upp nýir verkferlar sem standast allar öryggiskröfur Norðuráls og svo reiknaður út kostnaður hvors kerfis fyrir sig. Á vöktunum eru tæplega 200 stöðugildi í dag. Einnig var fjallað um hvernig vaktavinna hefur áhrif á líðan fólks og öryggi. Sýnt var fram á að unnt er að spara margar milljónir króna á ári með því að skipta úr tólf tíma vöktum í átta tíma vaktir. Lunginn af sparnaðinum næst með lágmörkun „dauðs“ tíma í lok vaktar og aukinni skilvirkni vinnunnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Daði vaktakerfi.pdf | 2.01 MB | Lokaður til...01.05.2025 | Heildartexti | ||
2012782959yfirlýsing.pdf | 203.82 kB | Lokaður | Yfirlýsing |