is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/35197

Titill: 
  • Staður möguleikanna: Þjónusta almenningsbókasafna við börn og ungmenni
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um rannsókn sem gerð var á nokkrum almenningsbóka-söfnum á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða sérstaklega hvaða þjónustu almenningsbókasöfn bjóða upp á fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10–14 ára. Enn fremur var markmiðið að athuga hvort áform séu um að þróa þjónustuna enn frekar og hvaða áskoranir er glímt við í tengslum við það. Rannsóknin var eigindleg en tekin voru sjö viðtöl við starfsmenn sem sjá um barna- og unglingadeildir á bókasöfnum og tvær vettvangsathuganir gerðar. Rannsóknarspurningarnar voru þrjár talsins. Hvaða þjónustu veita almenningsbókasöfn 10–14 ára börnum og ungmennum og hvernig er hún veitt? Hver er framtíðarsýn starfsmanna á almenningsbókasöfnum varðandi þjónustu fyrir 10–14 ára börn og ungmenni? Hvaða áskoranir telja starfsmennirnir sig þurfa að glíma við þegar kemur að því að þróa þjónustuna? Spurningarnar mynduðu viðtalsramma en viðtölin byggðust á opnum spurningum og gátu stundum breyst eftir viðmælanda. Niðurstöðurnar sýna að störf bókasafnsfræðinga eru ólík og þjónusta sem veitt er á bókasöfnum er mismikil. Viðmælendur fylgdust vel með þróun erlendis, hvað væri að gerast þar og fundu oft til vanmáttar því erlend söfn gátu boðið upp á töluvert meira en íslensk söfn. Helstu áskoranir sem viðmælendur glímdu við var skortur á fjármagni til að hrinda ýmsum áformum í framkvæmd, vöntun á stuðningi samstarfsaðila og stjórnenda við það sem talið var nauðsynlegt að gera eða áhugi var fyrir, og ná til krakka og ungmenna. Framtíðarsýn bókasafnsfræðinga var að bjóða upp á ýmsa viðburði og smiðjur fyrir börn og ungmenni og reyna að höfða til ungmenna með því að hafa þægileg húsgögn og rými fyrir þau til að laða þau inn á söfnin og fá þau til að verja tíma sínum þar.

Samþykkt: 
  • 12.5.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/35197


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristín Guðrún Gunnarsdóttir - Staður möguleikanna.pdf1,09 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman - yfirlýsing - Kristín Guðrún Gunnarsdóttir.pdf27,87 kBLokaðurYfirlýsingPDF