Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35219
Í þessari ritgerð verður rýnt í samband fjölmiðla og hryðjuverka. Hryðjuverkahópurinn ISIS, sem hefur notað fjölmiðla óspart í sínar árásir og nýliðun undanfarin ár, verður tekinn sérstaklega fyrir. Höfundur varpar ljósi á samspil hryðjuverka og fjölmiðla og hversu ómissandi þáttur báðir eru hvor fyrir annan. Hryðjuverk hafa með tímanum þróast út frá því að vera innan landamæra ákveðins lands yfir í alþjóðlega ógn. Hryðjuverk nú til dags eru framin vegna trúarlegra gilda, sem leiða einstaklinga til árása ásamt því að búa yfir miklum tæknilegum hæfileikum. Nýliðun ISIS hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum og hafa margir einstaklingar frá ólíkum löndum viljað leggja samtökunum lið. Samtökin notfæra sér nýja fjölmiðla eins og Twitter og Youtube. Með aukinni þekkingu á slíkum miðlum gerir það auðveldara fyrir ISIS að koma upplýsingum til fólks og safna saman einstaklingum sem tilbúnir eru að ganga til liðs við samtökin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bestu vinir en verstu óvinir - Samband hryðjuverka og fjölmiðla 1.pdf | 425.31 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
blað fyrir ba.pdf | 207.67 kB | Lokaður | Yfirlýsing |