Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35284
Þegar aðilar eiga í samningaviðræðum stofnast sérstakt réttarsamband á milli þeirra sem leggur þeim á herðar trúnaðarskyldu, jafnvel þótt enginn bindandi samningur sé fyrir hendi. Trúnaðarskyldan felur í sér að aðilum ber að taka hæfilegt tillit til hagsmuna gagnaðilans í viðræðunum og fellur brot gegn þessari skyldu undir hugtakið culpa in contrahendo. Víðsvegar um heim, þ.á m. annars staðar á Norðurlöndunum, er viðurkennt að regla sé til staðar sem veitir aðila rétt á skaðabótum ef brotið er gegn trúnaðarskyldu gagnvart honum í samningaviðræðum og viðræðurnar renna út í sandinn.
Tilvist trúnaðarskyldunnar í samningaviðræðum nýtur viðurkenningar á Íslandi, en ekki hefur enn reynt á það fyrir Hæstarétti hvort brot gegn trúnaðarskyldunni veiti rétt til skaðabóta samkvæmt framangreindri reglu. Í ritgerð þessari er inntak reglunnar kannað með nánari hætti, meðal annars hvert sé umfang trúnaðarskyldunnar í samningaviðræðum og hvaða skilyrði séu fyrir skaðabótaskyldu ef brot gegn trúnaðarskyldu leiðir til þess að samningaviðræður fara út um þúfur. Enn fremur er leitast við að svara því hvers vegna ekki hefur enn reynt á regluna fyrir Hæstarétti og hvort það þýði að réttur til skaðabóta vegna culpa in contrahendo njóti ekki viðurkenningar hérlendis.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
JohannesTomasson Meistararitgerd final.pdf | 1.25 MB | Lokaður til...10.10.2040 | Heildartexti | ||
SkemmanYfirlysing.pdf | 303.26 kB | Lokaður | Yfirlýsing |