Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35415
Eftirfarandi greinargerð er um meistaraverkefni mitt í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Hún fjallar annars vegar um matarhátíðir almennt og Skagafjörð út frá matarmenningu og matvælaframleiðslu. Hins vegar fjallar greinagerðin um miðlunarhluta verkefnisins sem felur í sér undirbúning, gerð og vinnslu vefsíðunnar Matarhátíð í Skagafirði ásamt fimm stuttum uppskriftamyndböndum. Upphaflega átti matarhátíðin að vera haldin með hefbundnu sniði en í ljósi aðstæðna vegna Covid-19 faraldursins var ákveðið að hafa hátíðina alfarið á vefnum. Markmið verkefnisins er að kanna hvernig megi nota matarhátíðir og upplifanir til að efla matartengda ferðaþjónustu ásamt því að varpa ljósi á matvælahéraðið Skagafjörð í gegnum stafræna matarhátíð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Matahatid_lokaverkefni_Kolfinna.pdf | 744.03 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman.pdf | 44.2 kB | Lokaður | Yfirlýsing |