Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35432
Rannsókn þessi leitast við að meta og greina markaðssóknartækifæri sem stuðnings- og stoðtækjaframleiðandinn Össur stendur frammi fyrir. Áskoranir eru oft til staðar í mörgum af þeim stefnumótandi atriðum sem þarf að notast við þegar sótt er á nýja markaði og nýjar vörur eru innleiddar. Rannsóknin var unnin í samstarfi við Össur hf.
Össur hefur vaxið gríðarlega hratt á hverju ári síðustu tvo áratugi og til að halda áfram þeim mikla vexti þarf fyrirtækið að búa að sterkum stoðum. Leitast var við að svara eftirfarandi spurningum: (i) Hvar liggja tækifæri Össurar til markaðssóknar? (ii) Felst aukin markaðssókn í að leita á nýja markaði eða besta núverandi stoðir? Valið var að fara leið eigindlegrar aðferðafræði auk umbótamiðaðrar rannsóknar til að greina og skipuleggja aðgerðir til að leysa þær áskoranir sem standa í vegi Össurar fyrir næstu markaðssókn. Niðurstöður benda til að frekari innleiðing á OP-heilsugæslustöðvum inn í reksturinn auk sóknar á nýja markaði með nýju vörusafni muni styrkja þær stoðir sem Össur byggir rekstur sinn á. Ávinningur innleiðingar á nýjum stoðum hefur ekki áhrif á núverandi áherslur fyrirtækisins en byggir fremur á að styðja þann vöxt sem Össur stefnir á samhliða þeim.
Lykilorð: Vöxtur, Össur hf., Markaðssókn, Vaxtartækifæri, Yfirtökur og samrunar, Pestel og vöruþróun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Eru tækifæri til aukinnar markaðssóknar hjá Össuri - Lokaskil.pdf | 1.08 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman_yfirlysing_Friðrik M (1).jpg | 687.89 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |