Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35451
Tilgangur þessarar ritgerðar er að fjalla um áhrif tækniþróunar á smásöluverslanir og fyrirtæki, sérstaklega eru áhrif tækniþróunar á matvöruverslanir skoðuð. Leitast er við að skoða hvaða breytingar hafa orðið á matvöruverslunum með tímanum. Síðan er fjallað um hvaða þættir munu breyta matvöruverslunum í framtíðinni. Kauphegðun neytenda hefur tekið breytingum með tækniþróun. Netverslanir, snjallsímar og smáforrit, ásamt fleiri tækniþáttum hafa boðið upp á nýjar leiðir til að stunda viðskipti. Ritgerð þessi er heimildaritgerð þar sem helst var nýst við heimildir í formi frétta- og blaðagreina um tækniþróun í smásölugeiranum.
Helstu niðurstöður eru þær að tækniþróun í smásölugeiranum hefur aldrei verið jafn mikil og frá síðustu aldamótum. Tæknin er stöðugt að þróast og verður hraðari og betri með árunum. Netverslun mun halda áfram að aukast, bæði í gegnum internetið og snjallsíma. Sjálfsafgreiðslukassar munu verða notaðir í auknum mæli og einnig netverslanir. Netverslanir veita hefðbundnum verslunum meiri samkeppni, sem hefur leitt til þess að verslanir reyna að leggja meiri áherslu á upplifun og þægindi með tækniþróun. Farið verður út í hvaða tækninýjungar verslanir eru að skoða í dag og vöngum velt yfir því hvernig framtíðarverslanir munu líta út.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Yfirlysing.pdf | 12.75 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
lokaritgerdIHG.pdf | 1.04 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |