Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/35475
The attractiveness and branding of Iceland. Contribution of Íslandsstofa
Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á að hvaða leyti Íslandsstofa vörumarkar Ísland á alþjóðavettvangi. Fræðilegur hluti ritgerðarinnar vefur saman hugtökin mjúkt vald, almannadiplómatíu og vörumörkun lands og þjóðar. Efnislegi hluti ritgerðarinnar fjallar um þá þætti sem höfðu áhrif á ímynd Íslands á seinustu árum og hvernig Íslandsstofa notfærði sér þá auknu umfjöllun til að styrkja ímynd lands og þjóðar. Þá er farið yfir starfsemi og áherslur Íslandsstofu og hverjir markhópar Íslands á sviði ferðamála eru. Niðurstaða þessarar ritgerðar greinir frá því hvaða leiðir Íslandsstofa nýtir sér til vörumörkunar Íslands og hvaða áhrif það hefur haft á aðdráttarafl Íslands.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Vörumörkun og aðdráttarafl Íslands, Framlag Íslandsstofu - Lokaskjal - F.E.Æ 2020.pdf | 614,33 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| Skil á lokaverkefni Finnboga - skilað með lokaverkefni á skemmuna.pdf | 988,74 kB | Lokaður | Yfirlýsing |