Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/35534
Í þessari ritgerð er fjallað um aðstæður heimilislausra og jaðarsettra hópa og þeirra helstu vandamál, þá aðallega vímuefnaraskanir og önnur geðræn vandamál. Fjallað er einnig um algengar orsakir og afleiðingar heimilisleysis og hvernig heimilisleysi bitnar á þeim sem missa heimili sín. Skoðuð eru gögn frá mismunandi stofnunum og löndum
ásamt heimildum um úrræði og þjónustu. Ísland er skoðað og borið saman við nokkur Evrópulönd og Bandaríkin. Einnig eru skoðuð nokkur dæmi um helstu úrræðin og þjónustuna sem er í boði fyrir heimilislausa
og jaðarsetta einstaklinga og árangur skoðaður. Út frá þeim gögnum má sjá að með mikilvægustu úrræðunum eru búsetuúrræði, þar sem árangur heimilislausra og jaðarsettra einstaklinga í öðrum úrræðum er mun betri ef þeir eru í búsetuúrræðum samhliða þeim. Í niðurstöðunum má sjá að Ísland er á heildina litið með að miklu leyti svipaðar
aðstæður og í öðrum Evrópulöndum en eftirá miðað við margar þeirra hvað varðar þjónustu og aðstoð í boði. Hægt væri að bæta úrræði og aðstoð á Íslandi með fleiri rannsóknum á málefnum heimilislausra og jaðarsettra hópa með önnur Evrópulönd til fyrirmyndar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heimilisleysi.pdf | 589.12 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Epson_05202020_114451.png | 763.21 kB | Lokaður | Yfirlýsing | PNG |