Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35542
Upplýsingatækni spilar stórt hlutverk í lífi fólks og rekstri fyrirtækja og stofnana í nútímasamfélagi. Þróunin hefur verið hröð og gerir það kröfur á stofnanir að nýta sér stafrænar lausnir í rekstri sínum. Einn kostur sem fyrirtæki hafa í upplýsingatæknirekstri sínum er að útvista verkefnum. Markmið þessarar rannsóknar var að draga saman helstu atriði varðandi útvistun upplýsingatækni og kanna hvort þróun í ytra umhverfi og kröfur til sveitarfélaga hefðu áhrif á stöðu útvistunar upplýsingatækni hjá Mosfellsbæ. Notuð var eigindleg tilviksrannsókn og voru tekin fimm viðtöl við starfsmenn hjá Mosfellsbæ og öðrum sveitarfélögum. Auk þess var farið í víðtæka gagnaöflun með það að markmiði að ná utan um umhverfi sveitarfélaga og kröfur sem eru gerðar til þeirra.
Niðurstöðurnar gefa til kynna að þrátt fyrir breytingar í ytra umhverfi og þróunar stafrænnar tækni þá er útvistun upplýsingatækni komin til að vera og þykir vænlegur valkostur í rekstri upplýsingatækni hjá opinberum aðilum. Mosfellsbær útvistar miklu af sínum upplýsingatæknirekstri en er einnig með innri tölvurekstur á fræðslusviðinu. Sveitarfélagið hefur aðlagað sig að breytingum í ytra umhverfi og tekið í notkun skýjavist sem er eitt af þeim útvistunarmódelum sem hafa komið til með þróun og breytingum í tækniumhverfinu. Mikilvægt er að vanda til verka þegar er verið að útvista upplýsingatækni og taka stefnumarkandi ákvörðun um af hverju á að útvista, hverju á að útvista og í hvaða mæli.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Er útvistun upplýsingatækni vænlegur kostur.pdf | 1.08 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Lokaverkefni yfirlýsing.jpg | 404.99 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |