Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/35562
Eftirfarandi ritgerð er verkefni til B.A.-prófs í þýsku við Háskóla Íslands. Í henni verður fjallað um ljóðformið sonnettuna og hvernig skáldið Rainer Maria Rilke fer með það í ljóðabálknum „Sonette an Orpheus“. Ritgerðinni er skipt í tvo hluta sem hvorir tveggja
skiptast í fjóra undirkafla. Í fyrri hluta ritgerðarinnar verður fjallað með almennum hætti um sonnettuna. Í fyrsta undirkaflanum verður sonnettan skilgreind og farið verður yfir einkenni ytra og innra forms hennar. Næst verður sagt frá uppruna sonnettunnar þar sem ítölsk sonnettuhefð og skáldið Petrarca verða í forgrunni. Í þriðja undirkafla er útbreiðsla sonnettunnar útskýrð þar sem kafað verður í spænska, franska og enska sonnettuhefð. Enn fremur verða staðalform frönsku og ensku sonnettanna kynnt. Í síðasta undirkafla fyrri hluta verður vikið að þróun þýskumælandi sonnettunnar. Ásamt því að kynna ljóðskáld og þróun verður einnig hinu „fullkomna“ sonnettuformi A.W. Schlegel lýst.
Í síðari hluta ritgerðarinnar verður sjónum beint að verkinu „Sonette an Orpheus“ auk þess sem sérstaklega verður fjallað um sköpunarferli höfundarins. Í öðrum undirkafla verður ljóðabálkurinn greindur. Þar verða fyrst ytri einkenni sonnettanna greind, þ.e.a.s. rímskemu, línustikl, þrípunktur og bragarhættir. Næst verður fjallað um innra form ljóðbálksins í heild. Þar á eftir verða ummæli um bálkinn reifuð og að lokum verður reynt að setja ljóðbálkinn í sögulegt samhengi.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BA-Arbeit_Brynhildur.pdf | 422.74 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
yfirlýsing.pdf | 288.11 kB | Locked | Declaration of Access |