Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/35668
Interdisciplinary teamwork in healthcare
Þverfagleg teymisvinna er skilgreind sem samvinna heilbrigðisstarfsfólks úr mismunandi starfsgreinum sem deilir þekkingu sinni með besta ávinning fyrir sjúklinginn í huga. Megin tilgangur með þessari fræðilegu samantekt var að skoða teymisvinnu í heilbrigðisþjónustu. Það er hvað einkennir teymisvinnu, hverjir eru helstu áhrifaþættir í teymisvinnu, áhrif samskipta í teymisvinnu og áhrif teymisvinnu á öryggi sjúklinga. Við heimildaleitina var stuðst við rafræna gagnagrunna: Pubmed, Scopus og Google scholar. Flestar heimildir voru yngri en tíu ára. Heimildaleitin stóð frá desember 2019 til apríl 2020.
Þverfagleg teymisvinna einkennist af mannlegum þáttum (e. non technical skills) sem er sambland af vitsmuna- og félagslegum þáttum. Hins vegar tæknilegum þáttum (e. technical skills) sem vísar til kunnáttu í tæknilegri færni. Teymisúrræði (e. crew resource management) er hugtak sem felur í sér þjálfun heilbrigðisstarfsfólks. Lykilþáttur teymisúrræðum fellst í að efla öryggi og árangursríkra teymis-vinnu.
Rannsóknir benda til að því betri sem teymisvinnan er, því skýrari eru markmið í með¬ferð sjúklinga. Þættir sem hafa helst áhrif á teymisvinnu eru mönnun heilbrigðisstarfsfólks, streita, álag, starfsánægja og samskipti. Samskipti eru taldir einn af mikilvægustu þáttum teymisvinnu. Brestir í samskiptum geta ógnað öryggi sjúklinga. Fram hefur komið að staðlað samskiptaform stuðlar að öruggari samskiptum milli heilbrigðisstarfsfólks. Ýmis viðurkennd stöðluð samskiptaform eru mikið notuð í teymisvinnu eins og SBAR (e. situation-background-assessment-recommendation) og staðfest samskipti (e. closed loop communication).
Niðurstöður rannsókna benda til að hermikennsla sé ein mikilvægasta kennsluaðferðin í teymisvinnu. Í Hermikennslu öðlast þátttakendur reynslu og þekkingu í öruggum klínískum aðstæðum. Niðurstöður margra rannsókna eru sammála um að skýr samskipti, teymisúrræði, sameiginleg sýn, taust og virðing séu þættir sem eru einkennandi fyrir teymisvinnu.
Lykilorð: Teymisvinna í heilbrigðisþjónustu, þverfagleg teymisvinna, áhrifaþættir, samskipti, öryggi, hermikennsla.
Interdisciplinary teamwork is defined as the collaboration of healthcare professionals from different professions who share their knowledge with the best benefits for the patient. The primary purpose for this theoretical summary was to explore teamwork in healthcare. What is the distinguishing for teamwork in healthcare, the effects on teamwork, the effects from communication in teamwork and patient safety in teamwork. Documentation was collected from december 2019 to April 2020 and databases like Pubmed, Scopus and Google scholar were used.
Interdisciplinary teamwork is characterized by non technical skills, which is combination of cognitive and social and technical skills. Crew resource management includes training of healthcare professionals and developement safety in work ethic. The key elements in crew resource management promote to these factors and lead to safe and effective teamwork.
Studies indicate that the better the teamwork are, the clearer are goals in patient care. What influences teamwork is short staffed, stress, pressure, communication and job satisfaction
One of the most important aspects of teamwork between healthcare professions is communication. Failure in communication threatened patient safety. Diverse forms of communication is used in the healthcare system, such as situation-background-assessment-recommendation (SBAR) and closed loop communication, which encourages to well defined and secure communications between healthcare professions.
Results from a studies have indicated that simulation is one of the most important teaching methods for teamwork. Simulation is a teaching method that provides students in clinical condition and empowers them to learn and practice in a safe enviroment. Most results from studies were consistent with what distinguish teamwork in healthcare is communication, crew resource management shared vision, mutual trust and respect.
Keywords: Teamwork in healthcare, interdisciplinary teamwork, influence factor, communication, safety, simulation.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Þverfaglegteymisvinna G og I. pdf.pdf | 395,63 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| yfirlýsing þverfagleg teymisvinna.pdf | 311,68 kB | Lokaður | Yfirlýsing |