Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/35714
Bakgrunnur: Sjálfsöryggi er hugtak sem gegnir mikilvægu hlutverki í barneignarferlinu. Það hefur áhrif á aðgerðir einstaklinga og fer eftir því hvaða færni og hæfileika þeir telja sig búa yfir. Stuðst var við sjálfsöryggislíkan sálfræðingsins Albert Bandura þar sem hann fjallar um áhrifaþætti; þætti sem snúa að fyrri reynslu, áhrif er koma frá reynslu annarra, sannfæringarkrafti annarra og lífeðlisfræðilegu og tilfinningalegu ástandi verðandi mæðra. Barneignarferlið er spennandi en viðkvæmt tímabil fyrir verðandi foreldra. Foreldrar mynda sér strax á meðgöngu skoðanir og hafa væntingar gagnvart foreldrahlutverkinu og eigin frammistöðu. Ef þessar væntingar standast ekki getur það dregið úr trú þeirra á eigin getu. Fjallað verður um samfélagsmiðla, vettvang sem getur spilað stóran þátt í sjálfsöryggi mæðra sem leita sér upplýsinga þar varðandi barneignarferlið.
Tilgangur og markmið: Að skoða og greina áhrif sjálfsöryggis í barneignarferlinu, upplifun mæðra og hvernig hægt sé að bæta hjúkrunar-og ljósmæðraþjónustu við foreldra.
Aðferðir: Fræðileg samantekt. Aflað var heimilda í gegnum gagnabankana Pubmed og Google Scholar á tímabilinu janúar til apríl 2020.
Niðurstöður: Niðurstöðurnar gefa til kynna að sjálfsöryggi skipti sköpum í foreldrahlutverkinu. Því sé mikilvægt að halda vel utan um konur í barneignarferlinu og þá sérstaklega nýbakaðar mæður. Margir þættir hafa áhrif á sjálfsöryggi en samkvæmt Bandura virðist fyrri persónulegur árangur eða afrek skipta hvað mestu máli. Ályktun höfunda er sú að áhrif er koma frá reynslu annarra hafi meira vægi nú á dögum en þegar Bandura setti fram sína kenningu árið 1994. Í nútímasamfélagi spila samfélagsmiðlar stórt hlutverk og eru þeir orðnir uppspretta upplýsinga er foreldrar nýta sér óspart.
Umræður: Rannsóknir um barneignarreynslu er ábótavant sem er athugunarvert þar sem þeir gegna ómissandi hlutverki í barneignarferlinu.
Background: Self-efficacy is a concept that plays an important role in the childbearing process. It influences the course of action of individuals and depends on what skills and abilities they consider themselves possess. The psychologist Albert Bandura derived the concept of Self-efficacy where he discussed the main factors such as; mastery experience, vicarious experience, verbal persuasion and physiological and emotional state. Pregnancy is an exciting but sensitive period for expecting parents as they are filled with expectations regarding parenthood which can set them for failure and undermine their self-belief. Social media also play a big role in transition to parenthood whereas parents commonly seek information regarding the childbirth process through the media. This will be looked at further into in this integrative review.
Aims: To analyze the impact of self-efficacy on the parental role, especially the mother’s experience.As well as analyzing approaches to improve parents care by nurses and midwives.
Methods: Integrative review. Sources were obtained through Pubmed and Google Scholar databases within the date of January to April 2020.
Results: The results indicate that self-efficacy is a crucial developmental factor in parenting. It is important to support these women during the childbirth process, especially new mothers. According to Bandura, many factors can affect self-efficacy, he states mastery experience as the most important factor of self-efficacy. Arguably, the authors find that vicarious experience is more intact with this century, whereas social media plays an important role in parenting. It has become the main source where parents study information about parenthood.
Conclusion: Fathers play a very important role on the childbirth process. It was appalling to see how very little research has been done on the father’s childbirth experience, considering that they play an important role in parenting
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
NKS_RSJ_BS_ritgerd.pdf | 569,45 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlysing_RN.jpg | 168,26 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |