Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/35882
Algengi þunglyndis, kvíða og streitu er hátt á meðal einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda og viðvarandi andleg vanlíðan hjá þeim sem sækja áfengis- og vímuefnameðferð getur haft áhrif á meðferðarárangur. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif meðferðar á andlega líðan einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda sem nýta sér inniliggjandi meðferðarúrræði sem í boði eru hjá SÁÁ. Að auki var athugað hvort munur væri á áhrifum meðferðar á andlega líðan eftir mismunandi bakgrunni skjólstæðinga. Stuðst var við hálftilraunasnið án samanburðarhóps þar sem sjálfsmatskvarði sem metur alvarleika einkenna þunglyndis, kvíða, og streitu (DASS-21) var lagður fyrir skjólstæðinga sem sóttu meðferð á meðferðarstöðinni Vík. Fyrirlagnir voru við innlögn og að meðferð lokinni. Helstu niðurstöður sýndu að verulega dró úr andlegri vanlíðan í meðferð, einkennum þunglyndis fækkaði um 54%, kvíði lækkaði um 57% og 47% fækkun var á einkennum streitu að meðferð lokinni. Munur var á áhrifum meðferðar á andlega líðan eftir kyni og meðferðarsögu. Munur var á áhrifum meðferðar á kvíða eftir kyni, en kvíði lækkaði meira hjá konum en körlum frá upphafi til lok meðferðar. Að auki var munur á áhrifum meðferðar á þunglyndi, en þunglyndiseinkennum fækkaði meira hjá þeim sem höfðu áður verið í meðferðarúrræðum SÁÁ samanborið við þá sem voru í sinni fyrstu meðferð. Þessi rannsókn bendir til þess að inniliggjandi meðferðarúrræði SÁÁ hefur æskileg áhrif á andlega líðan sjúklinga með áfengis- og vímuefnavanda. Að auki gefur hún innsýn í umfang geðrænna einkenna fyrir meðferð sem eru mikilvægar upplýsingar til að stuðla að þróun meðferðarúrræða.
Lykilorð: Þunglyndi, kvíði, streita, áfengis- og vímuefna sjúkdómur, vímuefnameðferð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Jakob_andleglidanSAA.pdf | 726.5 kB | Lokaður til...04.06.2025 | Heildartexti | ||
yfirlysing.PNG | 281.39 kB | Lokaður | Yfirlýsing | PNG | |
kapa.pdf | 934.93 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |