Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3590
Ritgerð þessi fjallar um atvinnustefnu á Íslandi. Hér verður leitast eftir því að svara tveimur spurningum.
Hvernig hefur atvinnustefna þróast á Íslandi?
Hver er atvinnustefna stjórnmálaflokkanna og ríkisstjórnarinnar árið 2009?
Hvað varðar þróun atvinnustefnu á Íslandi þá hefur atvinnustefnan tekið miklum breytingum frá árunum 1900 til 2009. Atvinnulíf á Íslandi einkenndist lengi af miklum ríkisumsvifum og regluveldi. Árið 1991 var mynduð ný ríkisstjórn sem boðaði breytingar á atvinnustefnu Íslands. Umhverfi atvinnulífs þróaðist úr því að vera reglumótað og þvingandi yfir í frjálsræði. Ríkið dró úr umsvifum sínum í atvinnulífinu og fyrirtæki og stofnanir í eigu ríkisins voru einkavædd. Atvinnustefna stjórnmálaflokkanna og ríkisstjórnarinnar árið 2009 er skoðuð til hlítar. Það sem einkennir atvinnustefnu þessara aðila er áhersla á nýsköpun og að draga úr atvinnuleysi. Helstu deiluefni flokkanna eru fjögur og snúast um fiskveiðistjórnunarkerfið, Evrópusambandið, aðkomu ríkisins að atvinnustarfsemi og að lokum stóriðju og umhverfissjónarmið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Atvinnustefna_fixed.pdf | 1,09 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |