Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36024
Ritgerð þessi fjallar um siðareglur fyrir alþingismenn og samspil þeirra við tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna. Í ritgerðinni er annars vegar leitast eftir að svara undir hvaða kringumstæðum geta siðareglur fyrir alþingismenn sett tjáningu þeirra skorður og hins vegar, hvort beiting siðareglna gæti leitt til takmörkunar á tjáningarfrelsi þingmanna. Áhersla var lögð á tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna utan Alþingis.
Alþingismenn settu sér siðareglur í mars 2016. Tilgangur þeirra er að efla gagnsæi í störfum alþingismanna og ábyrgðarskyldu þeirra sem og traust og tiltrú almennings á Alþingi. Siðareglurnar gilda við opinbera framgöngu þingmanna og snerta skyldur þeirra sem þjóðkjörinna fulltrúa og er þeim ætlað að koma til fyllingar öðrum lögum og reglum sem gilda um alþingismenn. Þingmenn njóta víðtæks tjáningarfrelsis og þarf mikið að koma til svo heimilt sé að skerða tjáningu þeirra og takmarka tjáningarfrelsi þeirra. Siðareglur hafa ekki stöðu laga og geta þar af leiðandi ekki takmarkað tjáningarfrelsi þingmanna innan Alþingis. Þær geta þó sett tjáningu þeirra, utan þingsins, ákveðnar skorður.
Lítið hefur reynt á siðareglurnar frá gildistöku þeirra og litast niðurstöður ritgerðarinnar nokkuð af þeirri staðreynd. Þó gefur sú framkvæmd, sem hefur átt sér stað, ákveðnar vísbendingar um hvenær mögulegt sé að setja tjáningunni skorður. Við mat á því hvort skerðingin sé heimil þarf einkum að líta til hvort tjáningin eigi erindi við almenning, að hverjum hún beinist og sannleiksgildi ummæla. Af núverandi framkvæmd siðareglnanna er ekki að sjá að beiting þeirra takmarki tjáningarfrelsi þingmanna. Hins vegar verður að gæta þess að þingmenn fái það ekki á tilfinninguna að siðareglurnar ógni tjáningarfrelsi þeirra.
This thesis discusses the Code of Conduct for members of Alþingi and their interaction with the expression and the freedom of expression of members of the parliament (MPs). The thesis explores, on the one hand, to answer under what circumstances the Code of Conduct for MPs can limit their expression and on the other hand, whether the application of the Code of Conduct could lead to a restriction on their freedom of expression. Emphasis was placed on the MPs expressions and their freedom of expression outside of Alþingi.
The Code of Conduct was adopted in March 2016. Their purpose is to promote transparency in the MPs work and their accountability, as well as increase the public’s trust and confidence in the Parliament. The Code of Conduct applies to the official conduct of MPs and concerns their duties as elected representatives. It is intended to complement other laws and regulations that apply to the MPs. MPs enjoy broad freedom of expression and much needs to be done to limit their expression and restrict their freedom. The Code of Conduct does not have the status of law and therefore it cannot restrict the MPs freedom of expression. However, they can limit their expression outside the parliament.
The conclusion of the thesis is marked by the fact that only in few instances where the Code of Conduct has been applied. However, the precedents that exists give some indication of when it is possible to limit MPs expression. In assessing whether the limits are permissible, special attention must be paid to whether the expression is relevant to the public, to whom it is directed at and to the truthfulness of the statements. From the current execution of the Code of Conduct, it does not indicate that it restricts the MPs freedom of expression. However, it must be ensured that MPs do not get the feeling that the Code of Conduct are a threat to their freedom of expression.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
SBS-sidareglur-fyrir-althingismenn-lokaskjal.pdf | 617,14 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
SBS-fylgiskjal-med-ritgerd.pdf | 1,88 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
steinunnbeidni.pdf | 416,78 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |