is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36028

Titill: 
  • Beitarréttur : lögfestar takmarkanir í þágu náttúruverndar
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessari er ætlað að skilgreina inntak beitarréttinda og hvernig löggjafinn hefur sett slíkum réttindum skorður í þágu náttúruverndar í því skyni að varpa ljósi á hvort núverandi framkvæmd nái fyllilega að tryggja þá verndarhagsmuni sem að er stefnt í lögum. Í upphafi ritgerðar verður leitast við að skýra inntak beitarréttar. Í því skyni verður fjallað um beitarrétt sem eignarréttindi og tengsl við atvinnufrelsi. Einnig verður fjallað um beitarrétt í tengslum við eignarréttarlega stöðu lands. Þá verður farið yfir afmörkun beitarréttar eins og hann birtist í lögum. Í ritgerðinni verður einnig fjallað um stjórnskipuleg skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt svo setja megi eignarréttindum á borð við beitarrétt skorður. Sjónarmið um náttúru-, umhverfisvernd og sjálfbæra nýtingu hefur verið veitt aukið vægi í lagasetningu í seinni tíð. Í því sambandi hefur löggjafinn sett ýmsar skorður við ráðstöfun og hagnýtingu náttúruauðlinda á borð við gróður og jarðveg sem miðar að því að vernda umhverfi og náttúru landsins. Í meginefni ritgerðar verður fjallað um helstu lagalegu takmarkanir á beitarrétti sem settar hafa verið í þessu skyni. Niðurstaða ritgerðarinnar bendir til að núgildandi regluverk um takmarkanir á beitarrétti í þágu náttúruverndar veiti ekki nægjanlega tryggingu eða aðgang að virkum úrræðum vegna ágangs búfénaðar. Af þeim sökum megi telja að vafi ríki um að tilhögun og framkvæmd eftirlits sé viðeigandi og samræmd. Þá virðast ákveðnar brotalamir vera á virkum úrræðum.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis is intended to define the content of grazing rights in Iceland and the ways in which the legislature has restricted such rights in the interest of conservation in order to highlight whether the current implementation can fully guarantee the conservation interests that are envisaged by law. The first section clarifies the content of grazing rights. To that end, grazing rights will be discussed as property rights, followed by a discussion of their ties to freedom of employment and ownership of land. The thesis will further review the demarcation of grazing rights as it appears in Icelandic legislation as well as the constitutional requirements that need to be met in order for property rights such as grazing rights to be restricted. Recent legislation has emphasized conservation and sustainable use of natural resources, including restrictions on utilization of natural resources such as vegetation and soil, which are aimed at protecting the natural environment of the country. The main body of the thesis will discuss the main legal restrictions on grazing rights that have been introduced for this purpose. The thesis concludes that current legal restrictions on grazing rights aimed at conservation do not provide sufficient guarantees. This further casts doubt on the appropriateness and coordination of the implementation and supervision of the restrictions on grazing rights.

Samþykkt: 
  • 10.6.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/36028


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ML ritgerð_Lilja Jónsdóttir.pdf927.56 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna