is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36132

Titill: 
  • Sjálfstæði íslenskra dómstóla og skipan dómara
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um sjálfstæði íslenskra dómstóla og skipan dómara. Í V. kafla stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 (hér eftir nefnd stjskr.) er fjallað um dómsvaldið auk þess sem 2. gr. hennar mælir fyrir um þrískiptingu ríkisvaldsins, höfuðeinkenni íslenskrar stjórnskipunar. Kenningin um þrígreiningu ríkisvaldsins kveður á um aðskilnað löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds. Þrátt fyrir aðgreiningu ríkisvaldsins í þrjá þætti þá var gert ráð fyrir ákveðnum tengslum þeirra á milli, en hlutverk þeirra var fyrst og fremst að mynda aðhald og jafnvægi hvert gagnvart öðru og vinna gegn samruna valdsins. Meginforsenda þess að dómstólar njóti trausts og trúverðugleika er að þeir séu sjálfstæðir í störfum sínum, gagnvart stjórnvöldum og hvers kyns hagsmunahópum og einstaklingum. Hér verður fjallað um þrískiptingu ríkisvaldsins og Ísland sem lýðræðis- og réttarríki. Enn fremur verður gerð grein fyrir mikilvægi sjálfstæðis dómsvaldsins, m.t.t. skipan dómara, sbr. ákvæði stjskr. og laga um dómstóla nr. 50/2016. Litið verður til aðferða við skipan dómara í Danmörku og Noregi og fjallað um hvort auka megi sjálfstæði íslenskra dómstóla í ljósi þeirra. Að lokum verður 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu skoðuð í þessu samhengi og fjallað um svonefnt Landsréttarmál sem bíður dóms yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu.
    Lykilhugtök: Lögfræði, stjórnskipunarréttur, dómsvald, dómstólar, dómarar.

  • Útdráttur er á ensku

    This essay deals with the independence of Icelandic courts and the appointment of judges. Chapter V. of the Constitution of the Republic of Iceland no. 33/1944 deals with the judiciary power in addition to Article 2 which prescribes the seperation of powers. The theory of separation of powers divides a state‘s government into three seperate and independent powers. It is typically divided into three branches; legislative, executory and judiciary powers. Despite the seperation, certain relations were expected, but primarily they were supposed to establish restraint, balance with each other and countervail the fusion of powers. Courts independency against the government, any affinity groups and individuals is necessary, to gain trust of the citizens. The seperation of power will be discussed in general for Iceland as a democracy and a constitutional state. The independence of the judiciary power will be emphasized, in relation to the appointment of judges, according to the Constitution and Lög um dómstóla nr. 50/2016. The appointment of judges in Denmark and Norway will be considered and ideas provided on how the independence of the Icelandic courts may be increased. Lastly, we will take a look at Article 6 of the European Convention on Human Rights, and address so-called Landsréttarmál which waits for a decision of the European Court of Human Rights.
    Key concepts: Laws, jurisprudence, constitutional law, judiciary, courts, judges.

Samþykkt: 
  • 15.6.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/36132


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sjálfstæði íslenskra dómstóla og skipan dómara.pdf596,52 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna