Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3617
Félagsfærniþjálfun barna með einhverfu er mikilvæg þar sem hún leggur áherslu á samskipti við önnur börn og þátttöku í leik þeirra. Í gegnum leik og samskipti myndum við samband við aðra sem stundum verður að vináttu. Vinátta er eitt af því mikilvægasta sem við eigum og allir ættu að fá tækifæri til að eignast vini, líka börn með einhverfu.
Í þessu verkefni er fjallað um félagsþroska barna með einhverfu og hvernig hann er frábrugðinn félagsþroska barna með eðlilega þroskaframvindu. Aðaláhersla verk¬efnisins er umfjöllun um myndbandseftirhermu sem er ein af aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar til félagsfærniþjálfunar. Með verkefninu fylgir myndskeið sem byggt er á aðferðum myndbandseftirhermu og gæti nýst í leikþjálfun barna með einhverfu.
Lykilorð: Félagsþroski barna, félagsfærniþjálfun, myndbandseftirherma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-ritgerð maí 2009.pdf | 441.77 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |