Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36193
Sameinuðu þjóðirnar eru mikilvægur vettvangur í öllu alþjóðlegu starfi ríkja. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun er alhliða ákall til aðgerða með það að forgrunni að binda enda á fátækt, vernda náttúru jarðar og tryggja að allir njóti friðar og hagsældar fyrir árið 2030. Ísland hefur unnið markvisst að innleiðingu heimsmarkmiðanna bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Sérstök verkefnastjórn var stofnuð til að sjá um innleiðinguna hér á Íslandi og ákveðin forgangsmarkmið stjórnvalda hafa verið sett. Verkefnastjórnin hefur farið af stað með ýmis verkefni til að vekja athygli á markmiðunum, hvetja stofnanir, fyrirtæki jafnt sem almenning til þátttöku og gert fræðandi upplýsingar aðgengilegar á alþjóðanetinu. Litið verður til ferlisins að fyrstu landsrýnikynningu Íslands fyrir Sameinuðu þjóðunum sem og það kynningarefni sem sett hefur verið fram. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða innleiðingu heimsmarkmiðanna á Íslandi það sem af er að þriðjung gildistíma þeirra. Áherslur, helstu áskoranir og framvinda innleiðingarinnar verða til skoðunar, rýnt verður í hvert heimsmarkmið út frá íslensku sjónarhorni og þeirrar samvinnu sem efnt hefur verið til við ýmsa aðila samfélagsins. Leitast verður eftir að gera einskonar yfirlit um innleiðingu heimsmarkmiðanna á Íslandi fram til ársins 2020.
The United Nations is one of the world’s most important forums for all nations. The United Nations’ Sustainable Development Goals are a universal call for action, foregrounding the importance of ending poverty, protecting the environment and ensuring peace and prosperity for all by the year 2030. Iceland has worked systematically to implement the United Nations Sustainable Development Goals, both domestically and internationally. A special project committee was established to oversee the implementation in Iceland and certain government priorities have been set. The committee has embarked on various projects to raise awareness of the goals, encourage organizations, companies as well as the public to participate. Information has been made accessible for everyone trough the internet in Icelandic. The process leading up to Iceland‘s first Voluntary National Review will be examined as well as promotional material. This thesis aims to summarize the implementation of the goals so far in Iceland as the first third of its duration has passed. The emphases, challenges and progression leading up to 2020 will be examined from the Icelandic perspective as well as the cooperation that has been established with various members of the community.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_Karen.pdf | 915,34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |