Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36249
Mannkyninu fer fjölgandi frá degi hverjum og er millistéttin í heiminum að stækka hratt. Því fylgir að meiri kröfur eru gerðar á næringarríka fæðu. Fiskur sem ræktaður er í eldi er næringarríkur og hefur eftirspurn á honum aukist mikið samhliða framleiðslu í heiminum. Hér á Íslandi er fiskeldi að stækka og fer nær allur fiskur í útflutning. Til að Ísland sé samkeppnishæft við önnur lönd þegar kemur að fiskeldi er útflutningur mikilvægur til að tryggja stöðugt framboð frá Íslandi á erlenda markaði. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að greina kostnað við mismunandi flutningsleiðir ásamt því að skoða sótspor við flutning frá Íslandi til Hollands. Leitað verður eftir því hvaða flutningsaðferð beri minnstan flutningskostnað. Skoðað verður verðmun á milli aðila sem flytja ferskan fisk frá Íslandi. Sótspor milli flutningsaðferða verður borið saman. Einnig verður sótspor eftir mismunandi magni afurðar og stærðar umbúða skoðað.
Helstu niðurstöður voru að töluverður munur er á sótspori milli flutningsaðferða. Kostnaður útflutnings er einnig mismunandi eftir aðilum. Samkeppni hefur skerpst milli flutningsaðila hérlendis með tilkomu nýrra fyrirtækja. Heildarkostnaður var mismunandi eftir því hvaða umbúðir voru notaðar í flutning.
Lykilorð: Sjávarútvegsfræði, Fiskeldi, Útflutningur, Kostnaðarliðir, Sótspor
Human kind is growing rapidly and the middle class in the world is expanding fast. Resulting in higher demands are made on nutritious foods. Farmed fish is nutritious and the demand for it has increased greatly in parallel with the world's production of fish farming. Here in Iceland, aquaculture is expanding and almost all fish are exported. In order for Iceland to be competitive with other countries when it comes to aquaculture, exports are important to ensure a steady supply from Iceland to the foreign market. The topic of this thesis is to analyze the cost of different modes of transport in export, as well as to examine the carbon footprint of transport from Iceland to the Netherlands. The method of transport that carries the lowest transport costs will be investigated. Price differences will be examined between parties importing fresh fish from Iceland. Carbon footprint between transport methods will be compared. Carbon footprint from different quantities of product and package size will also be examined.
The main conclusions were that there is a significant difference in the carbon footprint between transport methods. Cost of exports also vary by source. Competition has intensified between transport companies in Iceland with the emergence of new companies. The total cost varied depending on the packaging used in transport.
Key words: Fisheries science, Aquaculture, Export, Cost items, Carbon footprint
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS.ritgerd.Sigmundur_Arni_Sigurgeirsson.pdf | 1,15 MB | Lokaður til...29.04.2035 | Heildartexti |