Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36280
Hugtakið hringrásarhagkerfi hefur vaxið í vinsældum undanfarin misseri sem lausn við þeim vandamálum sem línulegt kerfi hefur í för með sér. Loftslagsbreytingar, glötun á líffræðilegum fjölbreytinga og mengun á grunnvatni eru aðeins hluti af þeim áskorunum sem mannkynið stendur frammi fyrir í dag. Of mikil neysla gerir það að verkum að mannkynið gengur á auðlindir jarðarinnar hraðar en þær geta endurnýjað sig. Í hringrásarhagkerfinu er lögð áhersla á bætta nýtni og að hanna vörur með framhaldslíf í huga. Markmið rannsóknarinnar var að svara því hvaða hvatar og hindranir eru til staðar fyrir fyrirtæki sem færa sig úr línulegu kerfi yfir í hringrásarhagkerfi. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð við gagnaöflun í formi viðtala. Niðurstöðurnar bentu á að margar hindranir eru til staðar fyrir fyrirtæki og þær hindranir sem stóðu upp úr voru lagalegs eðlis. Há upphafsfjárfesting kom einnig í veg fyrir að fyrirtæki tækju skrefin í átt að hringrásarhagkerfi, þó að til lengri tíma litið myndu fyrirtæki hagnast fjárhagslega á þátttöku. Vanþekking á hringrásarhagkerfinu gat verið hindrun, en í því fólst líka tækifæri til úrbóta. Umhverfislegur ávinningur var óneitanlega stór hluti af því af hverju fyrirtæki ákveða að taka skrefin, og það er fyrirtækjum til hagsbóta að minnka kolefnisfótspor sitt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hringrásarhagkerfið.pdf | 460,77 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |