Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/36322
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hver hreyfifærni barna sé í tilteknum grunnskóla í Reykjavík fyrir börn með hegðunar,-
og tilfinningavanda, í samanburði við aðrar rannsóknir.
Aðferð: Þátttakendur rannsóknarinnar voru 17 talsins. Þátttakendur voru allir nemendur í tilteknum grunnskóla í Reykjavík. Þátttakendur
framkvæmdu fimm hreyfifærnipróf; kasta og grípa, kasta baunapoka í hring, jafnvægi á öðrum fæti, ganga hæl í tá og hoppa á öðrum fæti. Prófin innihéldu grófhreyfingu og jafnvægi.
Niðurstöður: Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að börn í Grunnskóla X væru að koma verr út úr boltafærni og jafnvægisprófum í samanburði við
aðrar rannsóknir. Grunnskóli X er marktækt lakari í þeim prófum sem tekin voru í samanburði við niðurstöður fyrri rannsókna. Leggja þarf mat á eflingu hreyfifærni barna í Grunnskóla X.
Ályktanir: Þær rannsóknir sem benda til að börn með greiningar á borð við ADHD séu lakari þegar kemur að hreyfifærni styðjast þegar litið er til niðurstaðna úr þessari rannsókn. Í framhaldi af þessum niðurstöðum væri æskilegt að innleiða inngrip í Grunnskóla X með áherslu á að efla
hreyfifærni barna.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.BSc.MaríaGróa.pdf | 714.64 kB | Locked Until...2120/07/01 | Complete Text | ||
mariagroabeidni.pdf | 363.31 kB | Open | Beiðni um lokun | View/Open |