Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/36334
Tilgangur: Tilgangur þessa verkefnis var að útbúa skýringarmyndir fyrir styrktarþjálfun barna og unglinga þar sem möguleiki er á því að vinna í þáttum tengt líkamshreysti. Einnig var áætlað að kanna viðhorf einstaklinga við notkun skýringarmynda í kennslu, ásamt því að afla upplýsinga um það hvort myndirnar skili sér í auknum skilning og betri framkvæmd á æfingunum.
Aðferð: Kenningar og rannsóknir sýna fram á það að styrktarþjálfun í formi stöðvaþjálfunar geti haft líkamlegan ávinning í för með sér fyrir börn og unglinga. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á það að notkun mynda sé góð viðbót við kennslu og geti gagnast mörgum einstaklingum þegar kemur að auknu upplýsingaflæði og skilning á viðfangefninu.
Niðurstöður: Út frá niðurstöðum og kenningum voru útbúnar skýringarmyndir sem hægt er að nýta sér þegar kemur að stöðvaþjálfun, þar sem möguleiki er á því að vinna í þáttum tengdum líkamshreysti á öruggan, nákvæman og skilningsríkan máta.
Ályktanir: Vonast er til þess að með notkun skýringarmynda í styrktarþjálfun er hægt að veita fleiri einstaklingum nákvæmari og skýrari fyrirmæli um það hvernig skal bera sig að í æfingunum og hvað skal hafa í huga, meðan á framkvæmd stendur.