is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36360

Titill: 
  • Verkefnastjóri framtíðarinnar : hvaða hæfni verður mikilvægust fyrir verkefnastjóra í kjölfar fjórðu iðnbyltingarinnar?
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Fjórða iðnbyltingin vísar til þeirra tækninýjunga sem afmá mörkin á milli raunveruleikans og sýndarveruleikans og ýta á okkur öll að breytast og aðlagast. Í gegnum fyrri iðnbyltingar þá var það eina í stöðunni fyrir forvera okkar að læra, aðlagast og breytast eða missa af lestinni. Það er það sama uppi á teningnum í dag þegar að fjórða iðnbyltingin gengur yfir á ógnarhraða og hefur margvísleg áhrif á störf okkar og líf. Í kjölfar þess að eðli starfa, hlutverk og ábyrgð breytast, verða til ný vinnubrögð sem skapa þörf fyrir nýja hæfni. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar er að varpa ljósi á þá hæfni sem verður mikilvægust fyrir verkefnastjóra framtíðarinnar í kjölfar fjórðu iðnbyltingarinnar. Niðurstöður gefa til kynna að ný tækni kallar á verkefnastjóra með öðruvísi tæknilega hæfni og viðhorf en áður en umfram allt að gildi mannlegrar hæfni verða mikilvæg sem aldrei fyrr.

Samþykkt: 
  • 22.6.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/36360


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MPM-Lokaverkefni-Ragna.pdf308,27 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna